Sveinspróf

Sveinspróf í bílamálun og bifreiðasmíði verða haldin í júní 2025.

Hvenær má ég sækja um í sveinspróf?

  • Þú þarft að hafa lokið rafrænni ferilbók
  • Þú þarft að hafa útskrifast úr skóla
  • Eða að vera á lokaönn í iðnnámi. Þá þarftu staðfestingu um útskrift frá þínum skóla.

Hvaða gögnum þarf ég að skila með umsókn um sveinspróf?

  • Staðfestingu að rafrænni ferilbók sé lokið
  • Burtfararskírteini úr skólanum með einkunnum
  • Eða staðfestingu á því að þú munir útskrifast á yfirstandandi önn

Ertu ekki í rafrænni ferilbók heldur á námssamningi eftir eldra kerfi?

  • Þá þarftu að senda lífeyrissjóðsyfirlit til staðfestingar á vinnutíma með umsókninni

Þegar umsóknarfrestur er liðinn fær umsækjandi bréf með upplýsingum um prófstað, dagsetningu, leyfis- og efnisgjald þar sem það á við.

Próftaki sem óskar eftir sérúrræði í sveinsprófi, þarf að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa Iðunnar.

Eyðublað fyrir umsókn um sveinspróf

Sveinspróf í bílamálun

Sveinspróf í bílamálun verða haldin í júní 2025.

Prófþáttalýsing

Sveinsprófsnefnd er skipuð samkvæmt 30. gr. laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla og reglugerð nr. 698/2009 um sveinspróf.

Sveinsprófsnefnd:

Stjórnarráðið | Sveinsprófsnefnd í bílamálun 2023-2027

Sveinspróf í bifreiðasmíði

Sveinspróf í bifreiðasmíði verður haldið í júní 2025.

Prófþátta lýsing

Sveinsprófsnefnd er skipuð samkvæmt 30. gr. laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla og reglugerð nr. 698/2009 um sveinspróf.

Sveinsprófsnefnd:

Stjórnarráðið | Sveinsprófsnefnd í bifreiðasmíði 2023-2027

Sveinspróf í bifvélavirkjun 

Sveinspróf í bifvélavirkjun er fyrirhugað í byrjun október 2025.

Prófþáttalýsing

Sveinsprófsnefnd er skipuð samkvæmt 30. gr. laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla og reglugerð nr. 698/2009 um sveinspróf.

Sveinsprófsnefnd:

Stjórnarráðið | Sveinsprófsnefnd í bifvélavirkjun 2023-2027

Allar frekari upplýsingar um sveinspróf í bíliðngreinum veitir Helga Björg Hallgrímsdóttir í síma 590 6400 eða með því að senda tölvupóst á helga(hjá)idan.is.