Iðan fræðslusetur er viðurkenndur fræðsluaðili af Samgöngustofu til að halda endurmenntunarnámskeið fyrir atvinnubílstjóra.
Endurmenntunarnámskeiðin byggja á lögum um breytingu á umferðarlögum, nr. 50/1987, með síðari breytingum (EES-innleiðing o.fl.).
Atvinnubílstjórar sem aka bílum í flokkum C, C1, D og D1 þurfa að að ljúka endurmenntunarnámskeiðum á síðustu fimm árum fyrir endurnýjun til að fá tákntöluna 95 í skírteinið sitt. Mikil ábyrgð hvílir á bílstjórum stórra ökutækja en markmið námskeiðanna er að efla atvinnubílstjóra sem fagstétt og auka umferðaröryggi. 95 tákntalan gerir bílstjórum kleift að starfa við akstur innan EES svæðisins. Hér geta bílstjórarar skoðað sína stöðu gagnvart námskeiðum. Ef engin námskeið birtast, eru engin námskeið í gildi eða hafa ekki verið skráð af námskeiðshöldurum.
Fjöldi kennslustunda í endurmenntun skal vera samtals 35 stundir í 7 kennslustunda lotum á síðustu fimm árum fyrir endurnýjun. Námið samanstendur því af fimm námskeiðum sem má dreifa á þetta tímabil en verður að vera lokið fyrir endurnýjun ökuskírteinis. Eitt námskeiðanna þarf að innihalda verklegan þátt.
Námskeiðin skiptast í þrjá hluta:
Hver bílstjóri þarf:
Dæmi um námskeið sem Iðan býður upp á
Umhverfi:
Lög og reglur:
Öryggi:
Vörubílstjórar skulu velja eitt námskeið sem tengist farmhleðslu og bílstjórar í farþegaflutningum skulu taka að minnsta kosti eitt námskeið þar sem fjallað er um þær sérstöku áskoranir sem tengjast farþegaflutningum.
Nánari upplýsingar má sjá í námskrá endurmenntunar atvinnubílstjóra.
Mikilvægt er að fara til sýslumanns og endurnýja skírteinið eftir að námskeiðunum er lokið. Það gerist ekki sjálfkrafa. Við endurnýjun þarf ávallt að skila læknisvottorði.
Séu liðin meira en tvö ár frá því að skírteinið rann út, þarf að fara í próf í aksturshæfni hjá Frumherja.
Nánari upplýsingar má nálgast með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected] og [email protected].