Sérúrræði í sveinsprófi

Fylltu úr umsóknarformið hér að neðan til að sækja um sérúrræði í sveinsprófi.
Ferli umsóknar er sem hér segir:

  • Umsókn fyllt út um sérúrræði á vef IÐUNNAR fræðsluseturs
  • Náms- og starfsráðgjafi tekur við umsókn og hefur samband við umsækjanda
  • Umsækjandi skilar inn greiningu og kemur í viðtal til náms- og starfsráðgjafa
  • Náms- og starfsráðgjafi leggur inn beiðni til sveinsprófsnefndar um sérúrræði í sveinsprófi
  • Svar berst frá sveinsprófsnefnd
  • Náms- og starfsráðgjafi hefur samband við umsækjanda

Vegna allra sérúrræða skal nemandi skila inn greiningu eða vottorði frá þar til bærum aðila til náms- og starfsráðgjafa. Það skal gert í síðasta lagi 2 vikum fyrir fyrsta próf. Mjög áríðandi er að virða þessi tímamörk.