Traust samstarf fræðsluaðila, fagfólks og iðnaðar var til umræðu í hringborðsumræðum MCEU.
Iðan fræðslusetur er þátttakandi í MCEU þróunarverkefninu (Upskilling the EU Hospitality Industry with Portable Micro-Credentials) ásamt átta öðrum aðilum. Verkefnið er fjármagnað af KA2 – Erasmus+ styrkjaáætlun Evrópusambandsins og miðar að því að þróa örfræðslu og gefa út örviðurkenningra (e. micro credentials) í því skyni að styðja við símenntun og viðbótarþjálfun (e. upskilling) starfsmanna í hótel- og veitingageiranum. Í verkefninu er sérstök áhersla lögð á fræðslu sem tengist grænni og stafrænni umbreytingu.
Þriðjudaginn 29. apríl sl. fóru fram hringborðsumræður á vefnum þar sem m.a. var fjallað um helstu niðurstöður viðamikillar könnunar sem framkvæmd var í tengslum við verkefnið. Könnunin náði til rúmlega 3.800 fagaðila í ferðaþjónustu í 31 landi og leiddi m.a. í ljós að grunnhæfni, eins og að takast á við kvartanir, eftirlit með starfsfólki og gæðaeftirlit eru enn í forgangi. Hins vegar er stafræn færni og þekking á sviði sjálfbærni vanmetin af mörgum fagfólki þrátt fyrir aukna áherslu vinnuveitenda. Hringborðsumræðurnar voru vel sóttar og fyrir þá sem áhuga hafa er hægt að horfa á þær í heild sinni í meðfylgjandi myndskeiði. Hér verður svo stiklað á stóru um nokkrar helstu niðurstöður.
Helstu niðurstöður
Hringborðsumræðum MCEU lauk með skýrum skilaboðum. Framtíðarárangur í ferðaþjónustu byggir á traustu samstarfi milli fræðsluaðila, fagfólks og iðnaðarins. Öflug símenntun, aðlögunarhæfni og vilji til að tileinka sér nýjungar eru allt þættir sem skapa bjarta framtíð.