Sveinspróf í snyrtigreinum
Athugið að ekki er tekið við umsóknum í sveinspróf eftir að umsóknarfrestur er liðinn.
Hvenær má ég sækja um í sveinspróf?
- Þú þarft að hafa lokið rafrænni ferilbók
- Þú þarft að hafa útskrifast úr skóla eða að vera á lokaönn í iðnnámi og útskrifast fyrir töku sveinsprófs.
Hvaða gögnum þarf ég að skila með umsókn um sveinspróf?
Samkvæmt reglugerð um sveinspróf er nauðsynlegt að skila inn eftirfarandi gögnum:
- Staðfestingu að rafrænni ferilbók sé lokið.
- Burtfararskírteini úr skólanum með einkunnum eða staðfestingu á því að þú munir útskrifast á yfirstandandi önn og fyrir töku sveinsprófs.
- Staðfestingu meistara á umsókn í sveinspróf
Ertu ekki í rafrænni ferilbók heldur á námssamningi eftir eldra kerfi?
- Þá þarftu að senda lífeyrissjóðsyfirlit til staðfestingar á vinnutíma með umsókninni
Þegar umsóknarfrestur er liðinn fær umsækjandi bréf með upplýsingum um prófstað, dagsetningu, leyfis- og efnisgjald þar sem það á við.
Próftaki sem óskar eftir sérúrræði í sveinsprófi, þarf að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa Iðunnar.
Sveinspróf í hársnyrtiiðn
Næsta sveinsprófi í hársnyrtiiðn verður haldið í sept og okt., bóklegt próf 21.sept, verklegt próf verður 10. 11. 17. 18. 24. 25. 31.okt og 1.nóv, nánari dagsetningar skýrast að umsóknarfresti liðnum. Prófað verður á Akureyri 3.okt ef næg þátttaka næst. Umsóknarfrestur er til 7.ágúst. 2026.
Sveinsprófsnefnd:
Stjórnarráðið | Sveinsprófsnefnd í hársnyrtiiðn 2023-2027
Sveinspróf í snyrtifræði
Næsta sveinsprófi í snyrtifræði verður haldið í október , bóklegt próf 7.október, verklegt próf verður 10. 11. 17. eða 18.október, nánari dagsetningar skýrast að umsóknarfresti liðnum. Umsóknarfrestur er til 20.ágúst. 2026.
Vísun í gömul próf
Sveinsprófsnefnd:
Stjórnarráðið | Sveinsprófsnefnd í snyrtifræði 2023-2027
Allar frekari upplýsingar um sveinspróf í snyrtigreinum veitir Valdís Axfjörð í síma 590 6400 eða með því að senda tölvupóst á valdis(hjá)idan.is.