Sveinspróf í prent- og miðlunargreinum
Athugið að ekki er tekið við umsóknum í sveinspróf eftir að umsóknarfrestur er liðinn.
Hvenær má ég sækja um í sveinspróf?
- Þú þarft að hafa lokið rafrænni ferilbók
- Þú þarft að hafa útskrifast úr skóla eða að vera á lokaönn í iðnnámi og útskrifast fyrir töku sveinsprófs.
Hvaða gögnum þarf ég að skila með umsókn um sveinspróf?
Samkvæmt reglugerð um sveinspróf er nauðsynlegt að skila inn eftirfarandi gögnum:
- Staðfestingu að rafrænni ferilbók sé lokið.
- Burtfararskírteini úr skólanum með einkunnum eða staðfestingu á því að þú munir útskrifast á yfirstandandi önn og fyrir töku sveinsprófs.
- Staðfestingu meistara á umsókn í sveinspróf
Ertu ekki í rafrænni ferilbók heldur á námssamningi eftir eldra kerfi?
- Þá þarftu að senda lífeyrissjóðsyfirlit til staðfestingar á vinnutíma með umsókninni
Þegar umsóknarfrestur er liðinn fær umsækjandi bréf með upplýsingum um prófstað, dagsetningu, leyfis- og efnisgjald þar sem það á við.
Próftaki sem óskar eftir sérúrræði í sveinsprófi, þarf að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa Iðunnar.
Sveinspróf í grafískri miðlun
Sveinspróf í Grafískri miðlun verður 28. - 29.september 2026, bóklegt próf verður 24.sept. 2026. Kynningarfundur fyrir sveinsprófstaka verður haldinn 17.september kl.17:00 að Vatnagörðum 20. Umsóknarfrestur var til 15.ágúst 2026
Prófþáttalýsing
Sveinsprófsnefnd:
Sveinspróf í bókbandi
Sveinsprófsnefnd:
Sveinspróf í prentun
Sveinspróf í prentun verður 22. - 25. apríl 2026. Umsóknarfrestur er til 15. mars 2026
Sveinsprófsnefnd:
Sveinspróf í ljósmyndun
Sveinspróf í ljósmyndun verður 12. - 16.október 2026. Umsóknarfrestur er til 1. september 2026
Prófþáttalýsing
Sveinsprófsnefnd:
Stjórnarráðið | Sveinsprófsnefnd í ljósmyndun 2023-2027
Allar frekari upplýsingar um sveinspróf í prent- og miðlunargreinum veitir Guðrún Hjaltalín í síma 590 6400 eða með því að senda tölvupóst á gudrun(hjá)idan.is.