Sveinspróf í bygginga- og mannvirkjagreinum
Athugið að ekki er tekið við umsóknum í sveinspróf eftir að umsóknarfrestur er liðinn. Ef upp koma vandamál við skráningu má senda tölvupóst á [email protected] með skráningu. Í tölvupósti þarf að koma fram iðngrein, nafn og kennitala próftaka og netfang. Einnig þarf að koma fram kennitala, nafn og netfang hjá meistara og fyrirtæki.
Hvenær má ég sækja um í sveinspróf?
- Þú þarft að hafa lokið rafrænni ferilbók eða láta fylgja staðfestingu frá skóla að þú munir ljúka henni á yfirstandandi önn.
- Þú þarft að hafa útskrifast úr skóla eða að vera á lokaönn í iðnnámi og útskrifast fyrir töku sveinsprófs.
Hvaða gögnum þarf ég að skila með umsókn um sveinspróf?
Samkvæmt reglugerð um sveinspróf er nauðsynlegt að skila inn eftirfarandi gögnum:
- Staðfestingu að rafrænni ferilbók sé lokið.
- Burtfararskírteini úr skólanum með einkunnum eða staðfestingu á því að þú munir útskrifast á yfirstandandi önn og fyrir töku sveinsprófs.
- Staðfestingu meistara á umsókn í sveinspróf
Ertu ekki í rafrænni ferilbók heldur á námssamningi eftir eldra kerfi?
- Þá þarftu að senda lífeyrissjóðsyfirlit til staðfestingar á vinnutíma með umsókninni
Þegar umsóknarfrestur er liðinn fær umsækjandi bréf með upplýsingum um prófstað, dagsetningu, leyfis- og efnisgjald þar sem það á við.
Próftaki sem óskar eftir sérúrræði í sveinsprófi, þarf að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa Iðunnar.
Sveinspróf í húsasmíði
Næsta sveinspróf í húsasmíði verður haldið í janúar 2027, nánari upplýsingar verða settar þegar nær dregur, umsóknarfrestur er til 1.nóv 2026
prófþáttalýsing húsasmíði 2026
Sveinsprófsnefnd:
Stjórnarráðið | Sveinsprófsnefnd í húsasmíði 2023-2027
Allar frekari upplýsingar um sveinspróf í húsasmíði veitir Valdís Axfjörð í síma 590 6400 eða með því að senda tölvupóst á valdis(hjá)idan.is.
Sveinspróf í húsgagnasmíði verður haldið í júní 2027
Sveinsprófsnefnd:
Stjórnarráðið | Sveinsprófsnefnd í húsgagnasmíði 2023-2027
Allar frekari upplýsingar um sveinspróf í húsgagnasmíði veitir Valdís Axfjörð í síma 590 6400 eða með því að senda tölvupóst á valdis(hjá)idan.is.
Sveinspróf í múraraiðn verður haldið í júní 2027
- Prófþáttalýsing
- Vísun í gömul próf
Sveinsprófsnefnd:
Stjórnarráðið | Sveinsprófsnefnd í múraraiðn 2023-2027
Allar frekari upplýsingar um sveinspróf í múraraiðn veitir Valdís Axfjörð í síma 590 6400 eða með því að senda tölvupóst á valdis(hjá)idan.is.
Sveinspróf í málaraiðn verður haldið í janúar 2027.
- Prófþáttalýsing
- Vísun í gömul próf
Sveinsprófsnefnd:
Stjórnarráðið | Sveinsprófsnefnd í málaraiðn 2023-2027
Allar frekari upplýsingar um sveinspróf í málaraiðn veitir Guðrún Hjaltalín í síma 590 6400 eða með því að senda tölvupóst á gudrun(hjá)idan.is.
Sveinspróf í pípulögnum
Sveinspróf í pípulögnum verður haldið hjá Iðunni fræðslusetri, Vatnagörðum 20,104 R. Skriflegt próf verður haldið föstud. 14. ágúst kl. 13:00-14:30 - allir hópar. Skriflegt próf verður haldið að Stórhöfða 27. Gert er ráð fyrir nokkrum hópum í verklegt próf, hver hópur er í þrjá daga í verklegum hluta prófsins, fyrsti hópur byrjar 17.ágúst. Væntanlegir próftakar fá tilkynningar í tölvupósti með dagsetningar í verklegt próf. Umsóknarfrestur var til 15. júní. Næsta sveinspróf í pípulögnum verður haldið í janúar 2027, nánari upplýssingar verða settar þegar nær dregur. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2026
Upplýsingabréf og verkfæralisti
- Prófþáttalýsing
- Vísun í gömul próf
Sveinsprófsnefnd:
Stjórnarráðið | Sveinsprófsnefnd í pípulögnum 2023-2027
Allar frekari upplýsingar um sveinspróf í pípulögnum veitir Guðrún Hjaltalín í síma 590 6400 eða með því að senda tölvupóst á gudrun(hjá)idan.is.
Sveinspróf í veggfóðrun og dúkalögn
Sveinspróf í veggfóðrun og dúkalögn verður haldið 19.-22. og 26.-29. október. Bóklegt próf verður föstudaginn 30.október. Umsóknarfrestur er til 5. ágúst.
- Prófþáttalýsing
- Vísun í gömul próf
Sveinsprófsnefnd:
Stjórnarráðið | Sveinsprófsnefnd í veggfóðrun 2023-2027
Allar frekari upplýsingar um sveinspróf í veggfóðrun og dúkalögn veitir Guðrún Hjaltalín í síma 590 6400 eða með því að senda tölvupóst á gudrun(hjá)idan.is.
Sveinspróf í húsgagnabólstrun
Sveinspróf í húsgagnabólstrun hafa verið haldin eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Guðrúnu [email protected]
Prófþáttalýsing
Stjórnarráðið | Sveinsprófsnefnd í húsgagnabólstrun 2023-2027
Allar frekari upplýsingar um sveinspróf í húsgagnabólstrun veitir Guðrún Hjaltalín í síma 590 6400 eða með því að senda tölvupóst á gudrun(hjá)idan.is.