Sveinspróf í matvæla- og veitingagreinum
Athugið að ekki er tekið við umsóknum í sveinspróf eftir að umsóknarfrestur er liðinn. Ef upp koma vandamál við skráningu má senda tölvupóst á [email protected] með skráningu. Í tölvupósti þarf að koma fram iðngrein, nafn og kennitala próftaka og netfang. Einnig þarf að koma fram kennitala, nafn og netfang hjá meistara og fyrirtæki.
Hvenær má ég sækja um í sveinspróf?
- Þú þarft að hafa lokið rafrænni ferilbók eða vera að ljúka á yfirstandandi önn.
- Þú þarft að hafa útskrifast úr skóla eða að vera á lokaönn í iðnnámi og útskrifast fyrir töku sveinsprófs.
Hvaða gögnum þarf ég að skila með umsókn um sveinspróf?
Samkvæmt reglugerð um sveinspróf er nauðsynlegt að skila inn eftirfarandi gögnum:
- Staðfestingu að rafrænni ferilbók sé lokið eða að henni muni ljúka fyrir töku sveinsprófs.
- Burtfararskírteini úr skólanum með einkunnum eða staðfestingu á því að þú munir útskrifast á yfirstandandi önn og fyrir töku sveinsprófs.
- Staðfestingu meistara á umsókn í sveinspróf
Ertu ekki í rafrænni ferilbók heldur á námssamningi eftir eldra kerfi?
- Þá þarftu að senda lífeyrissjóðsyfirlit til staðfestingar á vinnutíma með umsókninni
Þegar umsóknarfrestur er liðinn fær umsækjandi bréf með upplýsingum um prófstað, dagsetningu, leyfis- og efnisgjald þar sem það á við.
Próftaki sem óskar eftir sérúrræði í sveinsprófi, þarf að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa Iðunnar.
Sveinspróf í bakaraiðn
Næsta sveinspróf í bakaraiðn verður haldið 2027
Sveinsprófsnefnd:
Sveinspróf í framreiðslu
Næsta Sveinspróf í framreiðslu verður haldið 2027
Sveinsprófsnefnd:
Sveinspróf í kjötiðn
Næsta sveinspróf í kjötiðn verður haldið 2027
Sveinsprófsnefnd:
Sveinspróf í matreiðslu
Næsta sveinspróf í matreiðslu verður haldið 2027
Sveinsprófslýsing í matreiðslu
Sveinsprófsnefnd:
Sveinspróf í kökugerð/konditori
Sveinspróf í kökugerð eru haldin í Danmörku og eru á vegum danskra menntamálayfirvalda.
Athugið að skilyrði til að þreyta sveinspróf í kökugerð þar í landi er að hafa lokið bæði skólanámi og vinnustaðanámi í greininni hjá viðurkenndu fyrirtæki í kökugerð í Danmörku. Sjá meira hér.
Allar frekari upplýsingar um sveinspróf í matvæla- og veitingagreinum veitir Sylvía Björk Ólafsdóttir í síma 590 6400 eða með því að senda tölvupóst á sylvia(hjá)idan.is.