Suðupróf og vottaðir suðuferlar
Fagleg yfirseta við framkvæmd suðuprófa eða gerð suðuferla í samstarfi við TÜV-Nord – til staðfestingar á hæfni suðumanna.
Fyrir hverja
Fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem vilja fá staðfestingu á hæfni í suðu með því að standast suðupróf eða vinnu við vottaða suðuferla.
Hentar vel iðnaðarmönnum sem þurfa að sýna fram á suðupróf eða viðhalda suðuréttindum sínum, auk fyrirtækja sem þurfa að eiga vottaða suðuferla.
Markmið
að bjóða upp á faglega yfirsetu og miðlun upplýsinga til að þátttakendur geti fengið viðurkenningu á suðuprófi eða vottuðum suðuferli.
Fjallað er um
- Forsendur og framkvæmd mismunandi suðuprófa
- Forsendur og framkvæmd mismunandi suðuferla
- Ávinning þess að hafa gilt suðupróf og ferla í gæðakerfum
- Kröfur og staðla sem unnið er eftir
- Verklega framkvæmd prófa
- Samstarf og verklag með TÜV-Nord við mat og útgáfu vottana
Að loknu námskeiði á þátttakandi að
- Hafa lokið suðuprófi eða suðuferli samkvæmt viðeigandi stöðlum
- Skilja kröfur og verkferla vottunarferlisins
- Geta unnið suðupróf eða suðuferil í samræmi við staðla TÜV-Nord
- Hafa aflað sér staðfestingar/vottunar á suðuhæfni eða suðuferli
- Krafist er umtalsverðrar reynslu og þekkingar í suðu
Fyrirkomulag og námsmat
- Lengd námskeiðs/yfirsetu: að hámarki 5 klst.
- Staðsetning: Í húsnæði Iðunnar eða hjá fyrirtækjum eftir óskum
- Námsmat: Verklegt próf, sjónskoðun og skaðleg prófun.
- Ávinningur: Suðupróf eða vottaður suðuferill frá TÜV
- Skráning og tímasetning: Í samráði við kennara
- Kennarar: Hilmar Brjánn og Kristján Kristinsson
- Verð: 100.000 kr. / Félagsverð: 25.000 kr.
- Tengiliður: Hilmar Brjánn, Sími: 898-3727, Email: [email protected]
Ef þátttakendur þurfa meiri undirbúning eða þjálfun, er samið um það sérstaklega.
Þakka þér fyrir umsóknina