Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til að gera aðal- og séruppdrætti sbr. ákvæði 25. og 26. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, verður haldið í mars og apríl 2026. Námskeiðið verður haldið á netinu á vefumsjónarkerfi Iðunnar fræðsluseturs. Opnað verður fyrir fyrirlestra þriðjudaginn 24. mars kl. 9.00 og verða þeir opnir til 17. apríl kl. 13.00. Námskeiðinu lýkur með prófi föstudaginn 17. apríl kl. 9.00 – 13.00.
Námskeiðsgjald er kr. 118.900.
Sótt er um þátttöku á námskeiðinu með rafrænum skilríkjum á island.is
https://island.is/loggilding-mannvirkjahonnuda/saekja-um
Umsóknir skulu berast eigi síðar en mánudaginn 16. mars 2025