„Að færa uppskriftir á stafrænt form snýst ekki bara um að spara tíma– heldur að tryggja stöðugleika, draga úr matarsóun og styrkja fagfólk í að einbeita sér að því sem þeir gera best: að búa til frábæran mat,“ segir Renata Bade Barajas, stofnandi og framkvæmdastjóri GreenBytes.
Þessi nálgun er í forgrunni á nýju vefnámskeiði þar sem kynntur er nútímalegur hugbúnaður sem kallast Biti. Hugbúnaðurinn er ætlaður til að skipuleggja uppskriftir, færa þær á stafrænt form og til þess að einfalda rekstur eldhúsa.
Vefnámskeiðið hentar fyrir fólk sem vinnur í veitingahúsum, mötuneytum, hótel- og stofnanaeldhúsum, og kennir notkun Bita til að færa uppskriftir á stafrænt form, nálgast upplýsingar um ofnæmisvalda og næringargildi, og reikna út raunkostnað rétta með nákvæmni.
Þátttakendur vinna með raunveruleg dæmi og læra hvernig á að skrá uppskriftir og nýta eiginleika Bita til að bæta skilvirkni og samkvæmni í eldhúsrekstri.
Biti er þróaður af hugbúnaðarfyrirtækinu GreenBytes og býr yfir öflugum verkfærum til að halda utan um uppskriftir, birgðahald og samskipti við birgja.Kerfið getur reiknað nákvæmlega út hvaða hráefni þarf að kaupa fyrir hverja viku eða máltíð, sem hjálpar til við að lágmarka matarsóun og bæta nýtingu birgða.
Biti sýnir einnig sundurliðaðar upplýsingar um uppskriftir – hráefni, magntölur og ofnæmisvalda – sem tryggir stöðugleika í framreiðslu og bætir öryggi og upplifun gesta.
Námskeiðið er kennt á ensku og fylgir með sex mánaða aðgangur að Bita hugbúnaðinum, sem gefur þátttakendum tækifæri til að beita því sem þeir læra beint í sínu eigin starfsumhverfi.
Með leiðbeiningum og dæmum úr raunveruleikanum fá þátttakendur skilning á því hversu mikils virði það er að færa uppskriftir yfir í stafræn kerfi og hvernig Biti getur orðið lykiltæki í því ferli.
„Biti er ekki bara tól – það er grunnur að faglegum rekstri. Með því að innleiða Bita í eldhúsið ertu að setja ný viðmið fyrir skilvirkni, sjálfbærni og nýsköpun í matargerð,“ segir Gijs Tempelman, stofnandi og rekstrarstjóri GreenBytes.