Fréttir
30. mars 2026

Ertu að sækja um í sveinspróf?

Ertu að sækja um í sveinspróf?

Ertu að sækja um í sveinspróf? Umsóknarfrestur rennur út 1. apríl. Starfsfólk Iðunnar fræðsluseturs aðstoðar þig ef þú lendir í vandamálum við skráningu.

Undirbúningur vegna sveinsprófa er nú í fullum gangi víða um land. Samhliða undirbúningi er einnig mikilvægt að huga að skráningu, en umsóknarfrestur um sveinspróf rennur út 1. apríl.

Ef upp koma vandamál við skráningu má senda tölvupóst á [email protected] með skráningu.

Í tölvupósti þarf að koma fram iðngrein, nafn og kennitala próftaka og netfang. Einnig þarf að koma fram kennitala, nafn og netfang hjá meistara og fyrirtæki.

Gangi ykkur öllum vel!

Fleiri fréttir