Fréttir
03. mars 2026

Fyrstu þátttakendur hæstánægðir með námskeið Öryggisskólans

Fyrstu þátttakendur hæstánægðir með námskeið Öryggisskólans

Mikil ánægja ríkti meðal fyrstu þátttakenda á námskeiði Öryggisskólans, Aukið öryggi í bygginga- og mannvirkjagreinum, sem fram fór í lok febrúar. Þátttakendur lýstu námskeiðinu sem hagnýtu, vel uppbyggðu og afar gagnlegu fyrir dagleg störf, þar sem skýr áhersla var lögð á raunhæfar aðferðir og nýja nálgun í öryggisfræðslu.

Námskeiðið er ætlað stjórnendum, verkstjórum, verkefnastjórum og öðrum lykilaðilum sem koma að skipulagi og stjórnun vinnustaða í bygginga- og mannvirkjagreinum. Farið er ítarlega yfir hvernig megi efla öryggismenningu með því að byggja upp traust, stuðla að gagnsæjum samskiptum og skapa umhverfi þar sem stöðugur lærdómur er í forgrunni. Sérstök áhersla er lögð á að þátttakendur geti innleitt aðferðirnar strax í eigin starfsemi.

Námskeiðið verður haldið reglulega

Viðtökurnar endurspegla einnig þá miklu eftirspurn sem nú er eftir markvissri öryggisfræðslu meðal fyrirtækja. Öryggisskólinn mun því halda námskeiðið reglulega á komandi misserum og bjóða jafnframt upp á fleiri námskeið sem byggja ofan á þessa grunnnálgun við að efla öryggismenningu á vinnustöðum.

Næsta námskeið í röðinni, Aukið öryggi í bygginga- og mannvirkjagreinum, verður haldið 6. mars nk sjá meira á vef Öryggiskólans. Stjórnendur geta einnig haft beint samband við Ásdísi Grétu Hjálmsdóttur til að fá upplýsingar um námskeið á næstunni á netfangið [email protected]

Fleiri fréttir