Fréttir
01. apríl 2026
Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar

„Gæðakerfið á að þjóna þér – ekki öfugt“

„Gæðakerfið á að þjóna þér – ekki öfugt“
„Ef upp kemur ágreiningur eftir að verki er lokið – þá skipta gögnin í gæðakerfinu öllu máli,“ segir Sigrún. Mynd/Pétur

Sigrún Melax er gæða-, öryggis- og umhverfisstjóri hjá Jáverk og kennir á námskeiðinu Gæðastjórnun í byggingariðnaði, sem hefst 16. apríl næstkomandi. Þar leggur hún áherslu á einfaldleika, skýran tilgang og raunhæfa nálgun sem nýtist sérstaklega minni fyrirtækjum og iðnmeisturum.

Sigrún er verkfræðingur að mennt en segir áhugann á gæðastjórnun ekki hafa kviknað í skóla. „Áhuginn kviknaði í starfi hjá Össuri. Í atvinnuviðtali hjá þeim sá ég tækifæri sem heillaði mig og ég sé alls ekki eftir því í dag.“

Árið 2018 færði hún sig yfir til JÁVERK þar sem hún hefur starfað síðan. Að hennar sögn er gæðastjórnun bæði krefjandi og skemmtilegt svið – sérstaklega þegar tekst að einfalda flókin mál.

„Það sem heillar mig við gæðastjórnun er að einfalda hlutina,“ segir Sigrún. „Við eigum að uppfylla allar kröfur, en viljum gera það á eins einfaldan hátt og hægt er. Gæðakerfið á að þjóna okkur – ekki að við séum að þjóna því.“

Gæðastjórnun þarf ekki að vera flókin

Sigrún telur umræðuna um gæðastjórnun oft fara út í óþarfa flækjustig og bendir á að hugtakið sjálft geti virst yfirþyrmandi. „Ég held að þetta sé hugtak sem fólki finnst erfitt að átta sig á. Það er búið að flækja þetta svo mikið fyrir sér.“

Þess vegna leggur hún áherslu á að hjálpa fólki að sjá að gæðastjórnun er í grunninn einföld hugsun: að gera hlutina rétt, skrá það sem skiptir máli og geta fundið upplýsingarnar aftur.

Af hverju skiptir einfaldleiki máli?

Að mati Sigrúnar getur flókið gæðakerfi gert meira ógagn en gagn. „Ef við erum með flókið gæðakerfi þá erum við kannski að eyða tíma og orku í hluti sem skipta ekki máli. Að búa til skráningar skráninganna vegna hjálpar engum – það eykur bara kostnað og flækjustig.“

Hún nefnir líka að ofgnótt gagna geti orðið vandamál. „Ef þú þarft að finna gögn en finnur þau ekki af því að það er einfaldlega of mikið af þeim, þá er kerfið ekki að virka.“

Ávinningurinn af góðu kerfi er hins vegar skýr: „Ef þú gerir þetta vel geturðu klárlega minnkað kostnað. Og þegar eitthvað kemur upp á – eða ef upp kemur ágreiningur eftir að verki er lokið – þá skipta gögnin í gæðakerfinu öllu máli. Svo má ekki gleyma því að þetta eru lagalegar kröfur og hvort sem krafan um gæðastjórnunarkerfi breytist eitthvað eða ekki, þá mun krafan um að vera með eigið eftirlit ekki detta út. Gæðastjórnun snýst einmitt um að halda til haga og geta fundið réttu gögnin til að geta sýnt fram á það.“

Námskeið fyrir þá sem þurfa að gera þetta sjálfir

Námskeiðið sem Sigrún kennir er sérstaklega ætlað minni fyrirtækjum, undirverktökum og einyrkjum í byggingariðnaði. Það er hópur sem þarf að sinna gæðastjórnun samhliða öðru starfi.

„Þetta eru aðilar sem þurfa að gera þetta, en starfsemin er ekki það stór að það réttlæti að ráða sérstakan gæðastjóra,“ útskýrir hún.

Markmiðið er að þátttakendur öðlist skilning á grunnatriðum gæðakerfa, kröfum laga og reglugerða og geti byggt upp eigið kerfi.

„Við förum yfir hvað gæðakerfi er og til hvers við notum það, og skoðum kröfurnar sem þarf að uppfylla,“ segir Sigrún. „Svo vinnum við að því að setja kröfurnar í samhengi – meðal annars með einföldu Excel-gæðakerfi sem fólk getur notað sem upphafspunkt. Þátttakendur geta líka fengið prufuaðgang að Ajour ef þeir vilja.“

Algeng mistök: að gera ekkert – eða gera of mikið

Aðspurð um algengustu mistök segir Sigrún þau vera tvíþætt. „Annars vegar er það einfaldlega að sinna þessu ekki. Hins vegar að vera með gæðakerfi en nota það ekki.“

Hún bendir einnig á algengt vandamál við tilbúin kerfi. „Menn kaupa tilbúin gæðakerfi og aðlaga þau ekki að sinni starfsemi. Það er engin ein leið rétt – þú þarft að aðlaga gæðakerfið að því sem hentar þér.“

Að lokum leggur hún áherslu á að fólk þurfi að skilja tilganginn. „Ef þú skilur ekki af hverju þú ert að gera þetta, þá virkar kerfið ekki. Og ef gögnin eru ekki sett upp þannig að þú finnir þau, þá nýtast þau ekki heldur.“

Boðskapur hennar er skýr: Gæðastjórnun þarf ekki að vera flókin – en hún þarf að vera skynsamleg, einföld og nothæf.

Fleiri fréttir