Fréttir
02. mars 2026

Góð þjónusta er lykillinn að árangri í veitingarekstri

Góð þjónusta er lykillinn að árangri í veitingarekstri

Þjónustan er grunnurinn að góðum rekstri og upplifun gesta í veitingageiranum, segir Ari Thorlacius leiðtogi matvæla- og veitingagreina. Ný þjónustu- og vaktstjóranámskeið Iðunnar fræðsluseturs snúa að því að efla fagmennsku og efla gæði í þjónustu þar sem lögð er áhersla á fræðslu til starfsfólks í iðngreininni á öllum stigum.

Við getum verið með vandaðan mat og fallegt umhverfi, en upplifun gestsins ræðst fyrst og fremst af samskiptum, fagmennsku og þjónustu. Með þessum námskeiðum viljum við styrkja fagmennskuna og efla gæði í greininni í heild,“ segir Ari Thorlacius leiðtogi matvæla- og veitingagreina í Iðunni.

Í mars býður Iðan upp á þrjú námskeið fyrir starfsfólk. í matvæla- og veitingarekstri: Þjónustunámskeið – Grunnur þann 10. mars, Þjónustunámskeið – Framhaldsnámskeið þann 17. mars og Vaktstjóranámskeið þann 24. mars.

Við viljum efla fagmennsku í veitingageiranum og auka gæði menntaðra framreiðslumanna og einnig þeirra sem eru ófaglærðir. Þjónustan sem veitt er á veitingastöðum hefur áhrif á upplifun bæði innlendra- og erlendra gesta. Með markvissri fræðslu byggjum við upp sterkari og faglegri grein til framtíðar.“

Þjálfað starfsfólk tekur betri ákvarðanir

Ari segir mikilvægt að bjóða námskeið á öllum stigum. Við bjóðum grunnnámskeið fyrir nýliða, framhaldsnámskeið fyrir þau sem hafa öðlast reynslu og vilja dýpka þekkingu sína, og sérstök námskeið fyrir vaktstjóra og leiðtoga. Markmiðið er að skapa skýra og raunhæfa starfsþróun innan greinarinnar.“

Veitingastaðir þurfa að fjárfesta í starfsfólki sínu segir Ari og bendir á að betri þjónusta leiði il ánægðari gesta. „Ef gesturinn fer glaður heim, þá eru meiri líkur á því að hann komi aftur.Þjálfað starfsfólk sýnir meira öryggi í starfi, tekur betri ákvarðanir og vinnur markvissar. Það styrkir bæði teymið og stjórnendur.“

Leiðir til starfsþróunar

Margir í greininni starfa í störfum sem teljast ekki hálaunuð. Ari segir fræðsluna auka hæfni starfsfólks og möguleika þeirra til að takast á við meiri ábyrgð. „Þetta styrkir ferilskrána og opnar leiðir til frekari starfsþróunar, til dæmis í hlutverk vaktstjóra eða stjórnenda. Þekking og fagmennska eru verðmæti sem fylgja einstaklingnum áfram.“

Miklir möguleikar séu einnig fyrir ófaglærða. „Með aukinni fræðslu, þekkingu og áhuga á greininni fyrir ófaglært starfsfólk, getur það leitt til enn frekari áhuga sem getur endað á raunfærni mati sem Iðan fræðslusetur býður upp á.“

Fleiri fréttir