Fréttir
16. mars 2026

Iðan fræðslusetur verður á Verk og vit 2026

Iðan fræðslusetur verður á Verk og vit 2026

Iðan fræðslusetur tekur þátt í Verk og vit 2026 í Laugardalshöll dagana 19.–22. mars og býður gesti velkomna á bás C4. Þar kynnum við starfsemi Iðunnar og fræðslu fyrir bygginga- og mannvirkjagreinar, auk þess sem gestir geta tekið þátt í skemmtilegri dagskrá. Í ár fögnum við jafnframt 20 ára afmæli Iðunnar fræðsluseturs.

Iðan fræðslusetur tekur þátt í sýningunni Verk og vit sem fer fram í Laugardalshöll dagana 19.–22. mars 2026. Sýningin er stærsti vettvangur landsins fyrir mannvirkjagerð, byggingariðnað og skipulagsmál.

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin að heimsækja okkur á bás C4, þar sem gestir geta kynnt sér starfsemi Iðunnar og fræðslu sem styður við þróun og hæfni í bygginga- og mannvirkjagreinum.

Í ár fögnum við jafnframt 20 ára afmæli Iðunnar fræðsluseturs, og því er sérstaklega ánægjulegt að taka þátt í Verk og vit á þessum tímamótum; hitta félagsfólk, samstarfsaðila, fagfólk og aðra gesti sýningarinnar.

Á básnum verður hægt að fræðast um hvernig Iðan vinnur með fyrirtækjum og fagfólki að efla þekkingu og færni innan iðn- og tæknigreina. Starfsfólk okkar verður á staðnum til að svara spurningum og kynna fjölbreytta fræðslu sem styður við þróun bygginga- og mannvirkjagreina.

Gestir á básnum geta einnig tekið þátt í skemmtilegri dagskrá, þar sem meðal annars verður hægt að taka þátt í 3D prentunarleik, og snúa lukkuhjóli.

Bás Iðunnar á Verk og vit 2026 er númer C4, og má sjá kort af sýningarsvæðinu og yfirlit yfir sýnendur á vefsíðu Verk og vit.

Dagskrá á bás Iðunnar

Fimmtudagurinn 19. mars | Sýning opin fyrir fagaðila
15:00 – 15:30 | Formleg opnun Verk og vit
16:00 – 20:00 | Opnunarhóf á bás Iðunnar þar sem boðið verður upp á léttar veitingar og starfsfólk Iðunnar verður á staðnum til samtals

Föstudagurinn 20. mars | Sýning opin fyrir fagaðila
10:00 – 19:00 | Starfsfólk Iðunnar kynnir starfsemi og fræðslu

Laugardagurinn 21. mars | Sýning opin almenningi
11:00 – 17:00 | Almenn kynning á Iðunni og starfsemi hennar

Sunnudagurinn 22. mars | Sýning opin almenningi
12:00 – 17:00 | Almenn kynning á Iðunni og starfsemi hennar

Fleiri fréttir