Fréttir
20. febrúar 2026

MCEU örnámskeið í veitinga-og ferðaþjónustu: Næstu skref

MCEU örnámskeið í veitinga-og ferðaþjónustu: Næstu skref

Iðan og SAF taka þátt í Erasmus+ verkefninu MCEU, þar sem þróaðar eru stuttar stafrænar námsleiðir fyrir starfsfólk í ferðaþjónustu og veitingageiranum. Fyrsta prufukeyrsla sýndi að sveigjanlegt örnám hentar vel samhliða vinnu og verður áhersla næst á skýrari örviðurkenningar.

Iðan og SAF taka þátt í evrópska Erasmus+ verkefninu MCEU (Upskilling the EUROPEAN Hospitality Industry with Portable Micro-Credentials) þar sem prófaðar eru stuttar, stafrænar námsleiðir fyrir starfsfólk í ferðaþjónustu þ.m.t matavæla og veitingagreinar. Í fyrstu prufukeyrslu (Pilot 1) tóku um 300 einstaklingar þátt frá þremur löndum; Íslandi, Spáni og Danmörku.

Íslensku þátttakendurnir komu allir úr atvinnulífinu  og kláruðu þeir yfir 80 námsleiðir, en hver námsleið  samanstendur af mörgum örnámskeiðum.

Niðurstöður sýna að stutt og sveigjanlegt örnám hentar starfsfólki vel, sérstaklega stutt námskeið sem hægt er að taka samhliða vinnu. Þátttakendum þótti námsefnið gagnlegt sem upprifjun og innblástur.

Ein helsta áskorunin sem kom í ljós snýr að örviðurkenningunum (e.micro-credentials) sjálfum. Niðurstöður úr könnun hjá þátttakendum sýndi að ekki er ljóst hver ávinningur örnámsviðurkenninga sé fyrir einstaklinga, bæði hvað varðar frekara nám eða starfsferil. Áherslan í næstu prufukeyrslu (Pilot 2) verður því að skýra betur hvaða hæfni og færni örviðurkenningin staðfestir og einnig að einfalda ferlið við útgáfu örviðurkenninga (e.micro credentials).

Örnámskeiðin eru öllum að kostnaðarlausu.

Ef þú eða fyrirtækið þitt hefur áhuga að taka þátt í næstu prófun (Pilot2) þá tökum við þér fagnandi. Við hvetjum félagsfólk til að taka þátt! Skráning fer fram hér.

Frekari upplýsingar má einnig fá í gegnum síma eða með því að senda póst á [email protected]

------------------------------------------------------

Á heimasíðu MCEU má llesa um verkefnið í heild en neðst á síðunni má einnig gerast áskrifandi að reglulegu fréttabréfi MCEU.

Fleiri fréttir