Fréttir
12. mars 2026

Menning á eldhúsum veitingastaða ólík milli landa

Menning á eldhúsum veitingastaða ólík milli landa

Alex Benjamín Bjarnason er nýsveinn í matreiðslu og nýkomin úr starfsnámi í Gautaborg í Svíþjóð.

Hann lauk sveinsprófi í janúar 2026 og fær sveinsbréfið sitt afhent núna í mars. Í byrjun árs hélt hann til Gautaborgar þar sem hann dvaldi í sex vikur. Hann starfaði á veitingastaðnum Project sem er þekktur veitingastaður í borginni þar sem mikil áhersla er lögð á gæði, nákvæmni og skapandi matargerð.

Að sækja sér reynslu erlendis

Alex segir að helsti hvati hans fyrir því að fara í starfsþjálfun erlendis hafi verið löngunin til að bæta sig í faginu. „Það að betrumbæta sjálfan mig í faginu, öðlast meiri reynslu og hjálpa mér að ákveða hvernig veitingastað mig langar að vinna við,“ segir hann þegar hann er spurður hvað hafi hvatt hann til að fara út.

Með því að vinna í nýju umhverfi fær fólk tækifæri til að sjá hvernig mismunandi eldhús starfa, hvernig skipulag og vinnubrögð eru útfærð og hvernig menning á vinnustað getur verið ólík milli landa. Slík reynsla getur hjálpað ungum fagmönnum að móta eigin sýn á fagið og framtíð sína innan þess.

Vingjarnlegt vinnuumhverfi

Aðspurður hvort hann hafi fundið fyrir miklum mun á móttökunum í Svíþjóð miðað við á Íslandi segir Alex að munurinn hafi ekki verið mikill. Hins vegar hafi hann tekið eftir því að fólk hafi almennt verið mjög hjálpsamt og vingjarnlegt.

Þessi jákvæða reynsla gerði það auðveldara að aðlagast nýjum aðstæðum og læra af samstarfsfólki sínu. Í fagum eins og matreiðslu, þar sem teymisvinna skiptir miklu máli, getur gott samstarf og stuðningur frá samstarfsfólki haft mikil áhrif á bæði námsferlið og líðan á vinnustað.

Mikilvægi fjölbreyttrar reynslu

Eftir dvölina telur Alex mikilvægt að deila ákveðnum lærdómi með öðrum sem eru að stíga sín fyrstu skref í faginu. Hann segir að reynslan hafi minnt sig á mikilvægi þess að byggja upp reynslu í fjölbreyttu umhverfi.

„Það er mikilvægt að byggja upp reynslu í fjölbreyttu umhverfi og læra að nálgast verkefni frá mismunandi sjónarhornum,“ segir hann. Slík reynsla getur hjálpað fólki að þróa nýjar aðferðir, verða sveigjanlegra í vinnubrögðum og öðlast dýpri skilning á faginu.

Skilningur á gæðum og teymisvinnu

Starfið á veitingastaðnum Project hafði einnig áhrif á Alex sem fagmann. Þar fékk hann innsýn í hversu mikil vinna liggur að baki því að halda uppi háum gæðastöðlum í veitingarekstri.

„Sem fagmanneskja hjálpaði reynslan mér að skilja magnið af vinnu sem fer í að viðhalda Michelin-standard og að það þarf að hafa gott teymi þar á bakvið,“ segir hann. Slíkt krefst skipulags, nákvæmni og góðrar samvinnu allra sem starfa í eldhúsinu.

Persónulega var dvölin einnig mjög ánægjuleg. Alex segir að það hafi verið sérstaklega gaman að fá tækifæri til að kynnast nýrri borg í öðru landi og upplifa aðra menningu samhliða starfinu.

Alex að vinna að rétti á Project.

Lærdómur, samvinna og vinnusemi

Þegar Alex er beðinn um að lýsa reynslunni í þremur orðum stendur ekki á svarinu: lærdómur, samvinna og vinnusemi. Þessi orð lýsa vel þeirri reynslu sem hann fékk á meðan á dvölinni stóð.

Fallegt um að litast í Gautaborg þar sem Alex naut sín í botn.

Ráð til þeirra sem eru að íhuga Erasmus

Að lokum hefur Alex einföld en skýr ráð til þeirra sem eru að velta fyrir sér að fara í Erasmus-námsmannaskipti eða starfsþjálfun erlendis.

„Bara allan daginn láta reyna á það, alla vega einu sinni,“ segir hann. Þetta sé í annað skiptið sem hann fari út og í bæði skiptin hafi reynslan endað með því að hann eignaðist góða vini.

Slík reynsla getur því ekki aðeins styrkt faglega hæfni heldur einnig opnað dyr að nýjum tengslum, vináttum og tækifærum sem geta fylgt fólki langt inn í framtíðina.

Fleiri fréttir