Fréttir
26. febrúar 2026

Mikilvægt málþing um Svansvottaðar byggingar

Mikilvægt málþing um Svansvottaðar byggingar
Bergþóra Góa Kvaran, sérfræðingur Svansins hjá Umhverfis- og orkustofnun.

Svansvottaðar byggingar njóta sífellt meiri vinsælda – og aldrei hafa jafn margar slíkar verið reistar hér á landi og á síðasta ári. Svanurinn og Iðan fræðslusetur efna til málþings um Svansvottaðar byggingar.

„Við vildum skapa rými þar sem fólk gæti talað saman af hreinskilni – ekki bara hlustað á erindi heldur líka speglað eigin reynslu í reynslu annarra,“ segir Bergþóra Góa Kvaran, sérfræðingur hjá Svaninum, sem flytur erindi á málþinginu.

Málþingið verður haldið í Iðunni fræðslusetri þann 5.mars frá 9. - 12.00 og er hugsað fyrir þá sem þegar þekkja til Svansvottunar í byggingum en vilja læra af reynslu annarra.

Bergþóra bendir á að hugmyndin að málþinginu hafi kviknað í samtölum við fólk í byggingargeiranum. Verkefnin séu orðin flóknari og mun fleiri komi að hverju þeirra. Þörfin fyrir vettvang þar sem hægt er að deila reynslu, ræða áskoranir og miðla lausnum sé orðin brýn.

Umsækjendur, leyfishafar, ráðgjafar, verktakar, verkkaupar og markaðsfólk. Allir sem koma að ferlinu ættu að gera sér far um að koma á málþingið.

Dagskráin er þétt og markviss.

Guðrún Lilja Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Svansins, setur málþingið og fer yfir þróunina síðustu misseri. Árið sem leið var metár í Svansvottun bygginga og fjöldi vottaðra verkefna jókst verulega. Hvað liggur að baki þeim árangri – og hvert stefnir þróunin?

Góð ráð um ferlið

Bergþóra fer yfir góð ráð og leiðbeiningar, meðal annars hvernig megi einfalda ferla, endurnýta gögn og forðast algeng mistök. Síðar á fundinum ræðir hún jafnframt þær kröfur sem reynast mörgum snúnar – og hvernig best er að takast á við þær.

Efnisval í Svansvottuðum byggingum

Sérstök áhersla verður lögð á efnisval í Svansvottuðum byggingum. Þar liggja oft stærstu áskoranirnar, enda þarf að tryggja að hver einasta byggingarvara uppfylli settar kröfur.

Katla Þöll Þórleifsdóttir, sérfræðingur hjá Svaninum, fer ítarlega yfir þetta ferli og varpar ljósi á hvernig hægt er að vinna markvisst og örugglega með samþykktir efna.

Reynsla fagfólks af stærri verkefnum

Á málþinginu flytur fólk erindi sem hefur tekist á verið verkefnin í raun.

Kristín Þrastardóttir frá Eykt ræðir skilning á kröfum Svansins og hvernig best er að innleiða þær í verkferla. Þórey Edda Elíasdóttir frá Verkís fjallar um útboðsgögn og hversu afgerandi þau eru fyrir framgang verkefna. Séu kröfur ekki skýrar í útboði geta vandamál komið upp síðar í ferlinu – skýrleiki í upphafi sparar bæði tíma og fyrirhöfn.

Sérstakar samtalslotur varpa ljósi á samstarf ólíkra aðila. Þar ræða meðal annars fulltrúar frá Verkvist og Sérverki um samvinnu í verkefnum, og fulltrúar Reykjavíkurborgar og VSÓ Ráðgjafar um vinnu við útboð og skipulag stærri verkefna. Hvernig þróast samstarf þegar nýjar kröfur bætast við? Hvað þarf til að halda utan um flókið ferli með mörgum þátttakendum? Þar verður bæði miðlað reynslu og viðurkennd að fullkomið kerfi er síbreytilegt markmið.

Málin rædd

Auk erinda verða borðaumræður þar sem þátttakendur fá tækifæri til að ræða málin í smærri hópum. Markmiðið er að skapa vettvang sem líkist fremur vinnustofu en hefðbundnum fyrirlestrarfundi – þar sem samtalið er í forgrunni og ólík sjónarmið mætast.

„Við vonumst til að sjá fólk á mismunandi stigum verkefna og með ólíka reynslu,“ segir Bergþóra. „Því fjölbreyttari sem hópurinn er, þeim mun meira lærum við hvert af öðru.“

Dagskrá

9:00-9:15 Opnun - Guðrún Lilja Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Svansins
9:15-9:30 Góð ráð og leiðbeiningar - Bergþóra Góa Kvaran, sérfræðingur hjá Svaninum
9:30-9:40 Reynslusaga: Skilningur á kröfum Svansins - Kristín Þrastardóttir, Eykt
9:40-9:50 Spjall um samvinnu - Alma Dagbjört Ívarsdóttir frá Verkvist og Ólafur Arnarsson frá Sérverk
9:50-10:10 Efnisval í Svansvottaðar byggingar - Katla Þöll Þórleifsdóttir, sérfræðingur hjá Svaninum

~ Hlé ~

10:25-10:35 Annað spjall um samvinnu - Anna Kristín Einarsdóttir frá Reykjavíkurborg og Guðný Káradóttir og Halldóra Björk Bergþórsdóttir frá VSÓ Ráðgjöf
10:35-10:50 Krefjandi kröfur - Bergþóra Góa Kvaran, sérfræðingur hjá Svaninum
10:50-11:00 Reynslusaga: Útboðsgögn - Þórey Edda Elíasdóttir, Verkís
11:00-11:45 Umræður
11:45-12:00 Niðurstöður

Takið daginn frá- skráning er hafin– tryggið ykkur sæti og takið þátt í samtalinu.

Fleiri fréttir