Fréttir
11. febrúar 2026

Miklir möguleikar í því að rafvæða eldri bíla

Miklir möguleikar í því að rafvæða eldri bíla
Sigurður Svavar Indriðason, leiðtogi bílgreina hjá Iðunni fræðslusetri.

Í apríl verður spennandi námskeið á dagskrá sem er ómissandi fyrir fagfólk í bílgreinum; Rafvæðing eldri bíla. Á námskeiðinu verður gömlum Land Rover bíl breytt í rafbíl.

Námskeiðið er haldið í samstarfi við Electric Classic Cars og kennt af stofnanda fyrirtækisins, Richard Morgan. Leiðtogi bílgreina hjá Iðunni, Sigurður Svavar Indriðason, segir frá námskeiðinu og þeim ótrúlegu möguleikum sem rafvæðing eldri bíla felur í sér. Sjálfur á hann sér þann draum að geta rafvætt fyrsta bílinn sem hann eignaðist og á enn; 2000 árgerð af VW Bora.

Hver er hugmyndin á bak við þetta námskeið?

„Í mínu starfi er maður alltaf að hugsa um að geta boðið upp á eitthvað nýtt og ferskt þegar kemur að fræðslu og þar sem rafvæðingin er á fullu er maður mikið að fylgjast með þeirri þróun sem er að eiga sér stað þar. Þó að mesti fókusinn sé á nýja rafbíla þá hef ég tekið eftir því að það er alltaf að verða vinsælla að breyta gömlum bílum í rafbíla og með þeim hætti halda eldri klassísku bílunum í umferð.

En að sama skapi njóta þeirra kosta sem aflrás rafbíla hefur upp á að bjóða s.s. hagstæðari rekstur og meiri akstursánægja.

Þarna sá ég möguleika á að sameina marga ólíka hópa innan bílgreinarinna sem kannski hafa ekki haft mjög mikinn áhuga á rafvæðingunni fram að þessu t.d. fornbíla áhugafólk, jeppafólk og ferðaþjónustan. Einnig gæfi þetta námskeið þeim sem hafa mikinn áhuga á svona verkefnum en vita ekki hvar á að byrja smá stuðning og myndi mögulega ýta undir að einhverjir myndu vilja sérhæfa sig í svona breytingum hér á landi.“

Segðu mér frá kennaranum? Hvernig kynntist þú honum?

„Richard er eigandi Electric classic car og halda þeir út YouTube rás sem ég hef verið að fylgjast með í nokkurn tíma þar sem farið er yfir þau verkefni sem þeir eru að taka að sé. Mér fannst þetta mjög áhugavert og Richard greinilega með mikla ástríðu fyrir því sem hann er að gera og fyrirtækið með mjög gott orðspor. Ég ákvað því síðastliðið sumar að prófa að hafa samband við ECC og kanna áhuga á samstarfi og þau tóku frábærlega í hugmyndina. Upprunalega var hugmyndin bara að vera með bóklegt námskeið en Richard átti eiginlega hugmyndina að því að taka þetta alla leið og breyta raunverulega bíl í rafbíl á námskeiðinu.“

Land Rover? Af hverju? Hvaða möguleika sérðu í þessu?

„Þarna spilar margt inn í, ECC hafa mjög mikla reynslu þegar kemur að breytingu á Land Rover enda staðsettir í Bretlandi og hafa t.d. veri að breyta Safari bílum í Suður Afríku í rafbíla og það tekur einungis nokkra daga með því að nota búnað úr Nissan Leaf. Land Rover er líka mjög vinsæll á íslandi og sameinar svolítið fornbílasamfélagið og jeppafólkið og að einhverju leiti er hann samofin íslenskri bílasögu. Land Rover Defender er líka mikið notaður í ferðaþjónustu þannig að þetta verður líka ákveðið tilraunaverkefni í tengslum við það hvort mögulegt sé að rafvæða þann bransa að einhverju leiti.“

Hver er skrýtnasti eða óvæntasti bíll sem þú hefur séð rafvæddan – og virkaði hann í alvöru?

„Ég veit að ECC hefur rafvætt Ferrari Testerossa , sem er fyrir suma örugglega svolítið skrítið enda eru Ferrari frekar þekktir fyrir stórar vélar og hávært púst hljóð.“

Ef þú þyrftir að velja einn klassískan bíl sem ætti aldrei að vera rafvæddur – hvaða bíl væri það og af hverju?

„Erfið spurning , í raun held ég að allir bílar geti verið rafvæddir en það fer eftir smekk hvers og eins og hvað fólk er að sækjast eftir. Í mínum huga væru það kannski einna helst gömlu amerísku V8 bílarnir.“

Hvað kemur fólki mest á óvart þegar það sér hversu flókið – eða einfalt – það er að rafvæða eldri bíl?

„Þetta er alltaf flókið en það er hægt að kaupa allskonar kit sem einfalda breytingu t.d. í okkar tilfelli er ECC búið að gera alla grunn vinnuna og hanna og framleiða festingar og rafmagns „loom“ þannig að framkvæmdin sjálf er ekki svo flókin en undirbúningurinn getur tekið mjög langan tíma.“

Hvað er eitt atriði sem fólk vanmetur algjörlega – og eitt sem það ofmetur – í svona umbreytingu?

„Eins og í mörgum svona verkefnum þá er það oft tíminn sem fer í þetta og peningarnir sem er svolítið vanmetið, í flestum tilvikum er þetta ekki ódýrt þó hægt sé að spara með því að nota íhluti úr rafbílum eins og rafmótora og rafhlöður.“

Hvað setur stærstu hömlurnar í dag: tæknin, regluverkið eða hugafar fólks?

Það er kannski einna helst þekkingin og lítil reynsla hér á landi en þetta námskeið mun vonandi breyta því. Einnig er mikilvægt að fólk sem fer í svona verkefni hafi góða þekkingu á rafbílum og vinnu við þá.“

Ef þátttakendur muna bara eitt atriði eftir námskeiðið, hvað viltu að það sé?

„Það er allt mögulegt.“

Áttu þér draumabíl sem þú vildir sjálfur rafvæða?

„Já, fyrsta bílinn minn 2000 árgerð af VW Bora sem ég er búinn að eiga í næstum 20 ár.“

Námskeiðið verður haldið tvisvar: Skráið ykkur hér ef þið viljið fara á námskeiðið 13.apríl. Og hér ef þið viljið fara á námskeiðið 14.apríl.

Fleiri fréttir