Fréttir
18. mars 2026

Ný nálgun í öryggisfræðslu

Ný nálgun í öryggisfræðslu

Öryggisskóli iðnaðarins býður upp á námskeiðið Aukið öryggi í bygginga- og mannvirkjagreinum, sem ætlað er stjórnendum, verkstjórum og öðrum lykilaðilum sem koma að skipulagi og stjórnun vinnustaða.

Á námskeiðinu er kynnt ný og hagnýt nálgun í öryggisfræðslu þar sem áhersla er lögð á að efla öryggismenningu, bæta samskipti og dýpka skilning á orsökum atvika og hætta á vinnustað. Þátttakendur fá raunhæf verkfæri sem hægt er að innleiða strax í daglegu starfi.

Námskeiðið er hálfs dags fræðsla og fer fram í kennslustofu á Stórhöfða 27. Næsta námskeið hefst 20. mars og er skráning hafin.

Nánari upplýsingar og skráning má finna hér:

👉 Sjá námskeið

Fleiri fréttir