Fréttir
09. febrúar 2026

Nýsveinum veittar viðurkenningar

Nýsveinum veittar viðurkenningar

Nýsveinahátíð IMFR 2026 var haldin á Hótel Natura 7. febrúar sl.

Hátíðin var með glæstasta móti og gladdi söngkonan Elín Hall gesti með söng. 

32 nýsveinum var veitt viðurkenning fyrir frábæran árangur á sveinsprófi.

Elín Hall spilaði og söng fyrir gesti.

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, sem er verndari hátíðarinnar, heiðraði samkomuna og flutti ávarp.

Mennta- og barnamálaráðherra, Inga Sæland, ávarpaði gesti og ræddi um mikilvægi iðnnáms fyrir samfélagið, uppbyggingu iðn- og verknáms, byggingu nýs Tækniskóla í Hafnarfirði og bætta kennsluaðstöðu fyrir verknám í öðrum  verknámsskólum.  

Mennta- og barnamálaráðherra, Inga Sæland, talaði til nýsveina.

Aldrei hafa jafn margir nemendur lokið sveinsprófum og á síðasta ári en tilgangur Nýsveinahátíðarinnar er að vekja athygli á mikilvægi iðnnáms og iðngreina í samfélaginu. 

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, Telma Sveinsdóttir, mannauðsstjóri Héðins hf og Ólafur Jónsson forstöðumaður Nemastofu.

Á hátíðinni afhenti Ólafur Jónsson, forstöðumaður Nemastofu, viðurkenningar til fyrirtækja sem hafa staðið sig framúrskarandi vel í því að taka á móti starfsnemum.

Fyrirtækin Bílapunkturinn, Héðinn og Snyrtistofan Garðatorgi eru fyrirmyndarfyrirtæki Nemastofu árið 2026. 

Fleiri fréttir