Seinni hluti tilraunaverkefnisins *MCEU Hospitality* er nú hafinn. Markmið þessa áfanga er að styrkja viðurkenningu og raunverulega notkun örviðurkenninga (micro-credentials).
Fyrri tilraunakeyrsla verkefnisins sýndi að aðgengilegt og sveigjanlegt vefnámsumhverfi MCEU hentar vel raunverulegum aðstæðum í ferðaþjónustu. Alls luku 257 þátttakendur 418 námsleiðum í þremur löndum.
Niðurstöðurnar leiddu þó jafnframt í ljós ákveðnar áskoranir. Að ljúka námi tryggir ekki sjálfkrafa að örviðurkenningin hafi raunverulegt gildi. Ef hvorki þátttakendur né atvinnurekendur hafa skýran skilning á því hvað viðurkenningin staðfestir, er hætta á að hún nýtist ekki í framkvæmd. Meira um niðurstöðurnar má finna hér: From completion to impact: What Pilot 1 reveals about micro-credentials in practice -
Í þessum áfanga verkefnisins verður því sérstök áhersla lögð á að:
* skýra betur hvað örviðurkenningin staðfestir,
* einfalda ferla,
* og styrkja tengsl við atvinnulífið.
Á Íslandi hafa Iðan fræðslusetur og Samtök ferðaþjónustunnar hafið samtal við 22 fyrirtæki í ferðaþjónustu. Á næstu vikum munu samstarfsaðilar í Barcelona á Spáni og í Danmörku einnig hefja sína aðra tilraunakeyrslu.
👉 Hægt er að skrá sig á póstlista verkefnisins til að fylgjast með framvindu þess og fá upplýsingar um komandi viðburði:
https://app.heyloyalty.com/subscribe/25185/7430