Fréttir
19. desember 2025

Prentvélarnar heima eru sjóðheitar í ár

Prentvélarnar heima eru sjóðheitar í ár
Einar Björn bóksali í Skáldu, Kristjana og Eyjólfur Jónsson umbrotsmaður ræddu um bókaprentun á Íslandi.

Margar af vinsælustu og fallegustu bókunum í jólaflóðinu í ár eru prentaðar hér heima í íslenskum prentsmiðjum.

Í nýjasta þætti af Bókaást spjallar Kristjana Guðbrandsdóttir við Eyjólf Jónsson umbrotsmann og Einar Björn Magnússon bóksala í Skáldu um íslenska bókaflóðið og gróskuna sem má finna í íslenskum prentiðnaði.
Við skoðum stórmerkilegar bækur frá Litlaprenti, Litrófi, Prentun, Pixel og Prentmet Odda. Margar þeirra sitja hátt á vinsældarlistum í ár og er það virkilega ánægjulegt.

Einar Björn sýnir sín einnig sín uppáhalds bókverk úr Skáldu eftir íslenska höfunda og það er ljóst að gróskan og sköpunarkraftinu í prentinu er gríðarleg.

Leiðrétta þarf hallann

Í spjallinu koma viðmælendur inn á mikilvæg málefni um það sem betur má fara. Eyjólfur bendir á mikilvægi þess að leiðrétta skekkju á virðisaukaskatti sem gerir íslenskum prentiðnaði erfitt fyrir. Innfluttar bækur bera 11% virðisaukaskatt á meðan bækur sem prentaðar er hér heima bera 24% virðisaukaskatt.

Skemmtilegt barnahorn í Skáldu, bókabúð á Vesturgötu í Reykjavík.

Þörf á betri gögnum

Þá vantar betri tölfræði um útgefnar bækur á Íslandi. Í úttekt sem Deloitte vann fyrir Menningar- og viðskiptaráðuneytið og var birt á síðasta ári kom í ljós að gallar eru á söfnun tölfræðigagna vegna bókaútgáfu á Íslandi og það þarf að laga. Bókasamband Íslands kannar árlega prentstað íslenskra bóka sem getið er í Bókatíðindum Félags íslenskra bókaútgefenda. Í ár gefur þeirra könnun til kynna að 87,2% bóka séu prentaðar erlendis. Fjöldi titla sem prentaðir eru innanlands og getið er um í Bókatíðindum eru 83 og fjölgar um 21 frá fyrra ári.

Prentun í Kína eykst

Prentun í Kína eykst á milli ára úr 8,3% í 9,7%. Kolefnisspor bóka sem eru prentaðar í Kína er þungt og betur færi á því að minnka það. Eyjólfur bendir á að um sé að ræða barnabækur í samprenti prentaðar ódýrt og að þær kæmu hreinlega ekki út með öðrum hætti nema að styðja rækilega og með markvissum hætti við útgáfu barnabóka.

Áskorun til ráðherra

Það er mikilvægt að hugsa í lausnum. Bókaprentun á Íslandi er á hraðri uppleið. Einar Björn og Eyjólfur eru sammála um það að grasrótin, nýsköpun og stuðningur við minni upplög séu leiðin að meiri grósku. Kristjana skorar á ráðherra og stjórnvöld að styðja betur við litlar útgáfur og íslenskan prentiðnað.

Nýsköpun mikilvæg

Nýsköpun er mikilvæg í prentiðnaði og Kristjana sýndi gjafapappír sem er prentaður í Litrófi og unninn í samvinnu við Listasafn Íslands sem á er prentað myndlist þekktra íslenskra myndlistarmanna. Hver örk er hönnuð til að gleðja og vekja athygli á gildi listar í daglegu lífi.

Þá má vekja athygli á hraðri og góðri þjónustu prentsmiðjanna hér heima sem margar bjóði hraða og góða prentþjónustu, stuðning í útgáfunni og hagstætt verð.

Áfram íslenskt bókaprent!

Fleiri fréttir