Fréttir
23. febrúar 2026

Reynslan skiptir máli – sögur af raunfærnimati

Reynslan skiptir máli – sögur af raunfærnimati
Almar Reginn Björnsson, Halldór Örn Halldórsson, Kolbrún Þorsteinsdóttir, Guðbjörg Ósk Andreasdóttir Gunnarsdóttir og Gunnar Ásgeir Sigurjónsson matsaðili.

Raunfærnimat er mat á þeirri færni sem einstaklingur býr yfir og getur mögulega stytt nám. Gunnar Ásgeir matsaðili, Halldór, Kolbrún, Almar og Guðbjörg deila með okkur reynslu sinni og upplifun af raunfærnimati.

Þau lýsa því hvernig ferlið hafi aukið sjálfstraust þeirra og opnað dyr að frekara námi. Að fá reynslu sína metna formlega sé ekki aðeins praktískt skref heldur einnig persónuleg viðurkenning á þeirri þekkingu sem byggst hefur upp í starfi í gegnum árin.

Gunnar Ásgeir Sigurjónsson er reynslumikill matsaðili í raunfærnimati. Hann leggur áherslu að raunfærnimat sé ekki „afsláttur“ af námi heldur sanngjörn leið til að staðfesta hæfni sem þegar er til staðar.

Viðmælendur eru sammála um að reynslan skipti máli og að sem flestir viti af þeirri þjónustu sem er í boði varðandi raunfærnimat. Þau vilja stuðla að því að fleiri nýti sér þessa leið.

Horfðu á reynslusögur þeirra og fáðu nánari upplýsingar um raunfærnimat. Allt þetta má finna hér.

Fleiri fréttir