Fréttir
25. mars 2026

Röskun á fræðslustarfi vegna veðurs

Röskun á fræðslustarfi vegna veðurs

Gefin hefur verið út appelsínugul veðurviðvörun fyrir höfuðborgarsvæðið til kl. 13 á morgun, fimmtudag.

Spáð er stórhríð sem getur valdið slæmum akstursskilyrðum og varað er við ferðum að nauðsynjalausu. Röskun verður á fræðslustarfi Iðunnar vegna veðurs og allt námskeiðahald um morguninn hefur verið fellt niður. Við biðjum alla þá sem eiga við okkur erindi að hafa samband með tölvupósti eða síma. Upplýsingar um námskeiðahald og þjónustu Iðunnar verða uppfærðar um hádegisbil á morgun. Farið varlega!

Fleiri fréttir