Iðan fræðslusetur þakkar kærlega fyrir frábærar móttökur á sýningunni Verk og vit 2026 sem fram fór í Laugardalshöll dagana 19.–22. mars. Fjöldi gesta lagði leið sína á bás C16 þar sem fjölbreytt starfsemi og fræðsla fyrir byggingar -og mannvirkjagreinar var kynnt.
Sýningin er stærsti vettvangur landsins fyrir byggingariðnað og var sérstaklega ánægjulegt að taka þátt í ár þar sem Iðan fagnar 20 ára afmæli sínu. Gestir tóku þátt í skemmtilegri dagskrá og áttu góð samtöl við starfsfólk Iðunnar fræðsluseturs sem stóð vaktina á básnum.
Iðan þakkar öllum sem heimsóttu básinn, sem og samstarfsaðilum og skipuleggjendum sýningarinnar, fyrir skemmtilega daga í Laugardalshöll.