Örviðurkenningar (e. micro-credentials) hafa verið mikið í umræðunni að undanförnu og vekja áhuga víða. Í síbreytilegu atvinnulífi, þar sem kröfur og hæfniþarfir þróast hratt, gætu þær orðið lykill að nýrri og sveigjanlegri leið til að viðurkenna færni.
Þann 9. apríl næstkomandi fer fram MCEU vefstofa þar sem fulltrúar úr atvinnulífinu koma saman til að ræða möguleika örviðurkenninga. Sérstök áhersla verður lögð á ferðaþjónustu og hvernig nýjar nálganir í hæfniviðurkenningu geta stutt við þróun greinarinnar.Á 90 mínútna vefstofu munu sérfræðingar deila innsýn í hvernig örviðurkenningar geta aukið traust, gagnsæi og viðurkenningu á skilgreindri hæfni – bæði innanlands og á alþjóðavettvangi.Vefstofan er haldin af Lobster Ink, sem sérhæfir sig í stafrænu námi og er í eigu EcoSure. Fyrirtækið er þátttakandi í MCEU-verkefninu sem nýtur styrks frá Erasmus+.
📆 9. apríl 2026 | kl. 08:00 - 09:30 👉 Skráning: https://lnkd.in/gBfp48BD