Luiz Lobo, margverðlaunaður fréttamaður er gestur Helen Gray í nýjasta þætti hlaðvarpsins Tækifæri í Evrópu um Mobility without Borders.
Luiz er reynslumikill fréttamaður, þulur, framleiðandi og þáttastjórnandi og hefur starfað fyrir sjónvarpsstöðvarnar PBS, CBC, History Channel, CNN International og fréttaveitur í Hollandi og Brasilíu.
Hann starfar í dag við ráðgjöf og þjálfun til stjórnenda um hvernig þeir geta hagnýtt sér alþjóðlegt samstarf til góða fyrir fyrirtæki. Hann deilir reynslu sinni og skýrir frá því hvers vegna alþjóðlegt samstarf lítilla fyrirtækja skiptir máli. „Fyrirtæki missa af miklu ef þau taka ekki þátt í alþjóðlegu samstarfi og ávinningurinn er mikill,“ segir Luiz og segir Íslendinga búa yfir sterkri nýsköpunarhugsun og hafi því miklu að miðla sjálfir.