Fréttir
02. febrúar 2026

Tökum þátt í pappírsvikunni

Tökum þátt í pappírsvikunni

Í ár tökum við þátt í Pappírsvikunni (Love Paper Week) á Íslandi. Pappírsvikan er alþjóðlegt fræðsluátak sem miðar að því að fræða um pappír og prent. Pappírsvikan hefst í dag og stendur yfir til 6. febrúar og í þessari viku hvetjum við alla til beina sjónum sínum að pappír og prentgripum.

Dreifing á prentuðu efni skiptir miklu máli í samfélögum og styður við lýðræði og trygga miðlun upplýsinga. Í dag á fyrsta degi Pappírsvikunnar birtist frétt um bækling sem verður dreift til allra heimila landsins.

Mikilvægt öryggismál

Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri almannavarnarsviðs ríkislögreglustjóra, segir í viðtali við Morgunblaðið að um sé að ræða leiðbeiningar til landsmanna sem búi þá undir atvik sem gætu valdið mikilli röskun á daglegu lífi. Það er engin tilviljun að þegar mikið liggur við að þá eru gefnar út prentaðar leiðbeiningar. Það hefur verið gert í nágrannalöndum okkar. Það er alls ekki eingöngu hægt að treysta á stafræna miðla í þessum efnum.

Bestu tólin tekin fram

Prentaðir bæklingar eru ekki eingöngu mikilvægir í þessum skilningi heldur eru þeir einnig sterk leið í markaðssetningu. Það er heldur ekki tilviljun að þegar líður að kosningum fara að berast kosningabæklingar inn um lúguna. Það er vegna þess að þegar mikið liggur við eru bestu tólin tekin fram. Það dettur engum stjórnmálamanni eða flokki í dag að halda eingöngu út stafrænni baráttu. Fyrir því eru margar góðar ástæður og allar eru þeir studdar góðum gögnum. Ein ástæða er sú að prentað markaðsefni eykur á traust. Önnur er skjáþreyta fólks og gríðarlegt áreiti af stafrænum auglýsingum. Með prentuðu og sérsniðnu markaðsefni er hægt að ná betur athygli fólks.

Sjálfbært!

Pappír er framleiddur úr sjálfbærum nytjaskógum þar sem hringrás gróðursetningar, ræktunar og skógar höggs er vandlega stýrt. Aðeins lítill hluti trés er nýttur í pappír, reyndar aðeins efsti hluti þess sem nýtist ekki í annað. Aðrir hluta þess eru notaðir í húsgögn, innréttingar, gólfefni, lyf og snyrtivörur.

Skógar sem nýtt eru til pappírs- og sellulósaframleiðslu eru ræktaðir og stýrt þannig að þeir vaxi og endurnýjist. Þetta stuðlar að kolefnisbindingu sem gagnast í baráttunni við loftlagsáhrif.

Hátt endurvinnsluhlutfall

Pappír hefur hátt endurvinnsluhlutfall. Það er um 80% á Íslandi og í Evrópu er endurvinnsluhlutfall pappírs rúmlega 70% og pappír oft endurunninn nokkrum sinnum áður en trefjarnar missa gildi. Þetta styður við að minnka úrgang og lækka umhverfisálag.

Í dag er óðum að koma í ljós þungt álag á umhverfi og náttúru vegna stafrænnar neyslu. Það er mikilvægt að skilja að stafræn neysla okkar sem eykst dag frá degi skilur eftir sig þung spor með aukinni rafmagnsnotkun. Þrátt fyrir þetta mikla álag á náttúruna þá eru fáir sem huga að því að minnka það. Þar á eftir að verða mikil vitundarvakning.

Prentum heima

Það er tilvalið að benda á að hér á landi stendur íslenskur prentiðnaður sterkur þegar kemur að sjálfbærni og ábyrgð á umhverfi. Þótt að við neyðumst til að flytja inn pappír til prents þá byggir framleiðslan á endurnýjanlegum orkugjöfum. Kolefnisspor íslensks prentiðnaðar er töluvert minna en í þeim ríkjum sem við berum okkur saman við. Árið

Íslensk prentfyrirtæki eru í raun brautryðjendur í umhverfismálum, nota virt vottunarkerfi sem nær til allrar aðfangakeðjunnar, nýta endurnýjanlega orku og stuðla að umhverfisvænni framleiðslu. Sí

Nemendur í prentsmíði í Góða hirðinum á dögunum.

Tökum þátt í pappírsvikunni

Hvernig getum við tekið þátt í pappírsvikunni?

  • Við getum deilt staðreyndum um prent og pappír. Við getum bent á sjálfbærnina og umhverfisvænan iðnað.
  • Við getum bent á nauðsyn þess að aðgengilegt sé að dreifa samfélagslega mikilvægu prentuðu efni og að stjórnvöld og þær stofnanir sem bera ábyrgð í þeim efnum skilji mikilvægið. Það er hreinlega lýðræðismál.
  • Við getum líka bent á hversu máttugt tól prentgripur er í markaðsmálum og á allar þær rannsóknir sem benda á að prentað og sérsniðið markaðsefni skilar betri árangri.
  • Við getum bent á að prentaðar bækur eru mikilvægar til að efla læsi.

Í pappírsvikunni kynnum við verkefnið Spjaldanna á milli. Kynningin fer fram í Tækniskólanum, húsi grafískra greina í Vatnsholti. Verkefnið stuðlar að enn meiri sjálfbærni í pappírs- og prentiðnaði með því að endurvinna spjöld bóka í minnisbækur og fleiri prentgripi.

Þá er verkefnið ætlað til þess að kveikja á þekkingu um bókband á Íslandi sem er faggrein sem er samofin menningu okkar. Verkefnið er unnið í góðri samvinnu við Góða hirðinn og Tækniskólann. Skráning á kynninguna er hér.

Fleiri fréttir