Fréttir
26. mars 2026

Við óskum nýsveinum til hamingju

Við óskum nýsveinum til hamingju
Ari Eldjárn steig á stokk nýsveinum og fjölskyldum til mikillar gleði. Mynd/Rúnar

Miðvikudaginn 25. mars fengu 145 nýsveinar afhent sveinsbréfin sín við hátíðlega athöfn á Hilton Nordica. Að þessu sinni voru það nýsveinar í húsasmíði, matreiðslu, málaraiðn og pípulögnum sem tóku á móti sveinsbréfunum sínum.

Nýsveinar fengu einnig afhenta platta og gjafir frá fagfélögunum sem og gjafabréf á námskeið sem haldin eru á vegum Iðunnar. Húsasmiðjan gaf einnig nýsveinum í bygginga- og mannvirkjagreinum gjafir.

Þá voru veittar viðurkenningar fyrir bestan árangur á sveinsprófi í hverri grein fyrir sig.

Í lok athafnar steig Ari Eldjárn á stokk og sló á rétta strengi. Við óskum nýsveinum til hamingju með þennan merkilega áfanga og fögnum því að fá fleiri nýsveina í hóp fagmenntaðra í iðnaði.

Fleiri fréttir