None
08. janúar 2021

Viltu vita meira um raunfærnimat?

Viltu vita meira um raunfærnimat?

Hér er upptaka af síðasta kynningarfundi um raunfærnimat þar sem Edda Jóhannesdóttir fagstjóri náms- og starfsráðgjafar IÐUNNAR fer yfir ferlið í heild sinni.

Smelltu hér til að óska eftir ráðgjöf í raunfærnimati

Raunfærnimat er leið til að meta þá færni og þekkingu sem öðlast má á vinnumarkaði. Matið getur mögulega stytt nám og verið hvatning til að ljúka því. Skilyrði fyrir þátttöku í raunfærnimati eru 23 ára aldur og 3 ára staðfest starfsreynsla í viðkomandi grein. Þessi leið hefur skilað góðum árangri þar sem margir þátttakendur raunfærnimatsins hafa haldið áfram námi og lokið sveinsprófi að loknu matinu.

Allar nánari upplýsingar um raunfærnimat veita náms- og starfsráðgjafar IÐUNNAR í síma 590 6400 eða [email protected]

Fleiri fréttir