Um sviðið

Fagráð bygginga- og mannvirkjagreina

Leiðtogi starfar náið með fagráði bygginga- og mannvirkjagreina sem er ráðgefandi gagnvart þörfum bílgreina í símenntun. Fagráðið er skipað fulltrúum frá atvinnurekendum og launþegasamtökum í hverri grein og stuðlar að því að þörfum greinanna sé mætt hverju sinni hvað varðar fræðsluþarfir, þjónustu og gæði. 

Fyrirtækjaheimsóknir

Fyrirtækjaþjónustan hefur skapað sér ákveðinn sess hjá Iðunni. Í henni felst að leiðtogi greinarinnar heimsækir fyrirtæki á sínu sviði. Í heimsóknunum er meðal annars farið yfir námsframboð Iðunnar, boðið upp á sérsniðin námskeið fyrir starfsfólk. Lögð er áhersla á að hlusta eftir óskum félagsfólks um fræðslu og stuðning í starfi. Skráðar eru í hugmyndabanka tillögur að nýjum námskeiðum sem koma frá starfsfólki og stjórnendum og reynt að koma til móts við slíkar óskir. 

Náms- og starfsráðgjafar Iðunnar taka oft þátt í heimsóknum og kynningum af þessu tagi til þess að kynna ítarlega þá þjónustu og ráðgjöf sem stendur félagsfólki til boða.  

Viltu fá leiðtoga bygginga- og mannvirkjagreina í heimsókn í þitt fyrirtæki?

Ólafur Ástgeirsson
Leiðtogi bygginga- og mannvirkjagreina
Sólveig Indriðadóttir
Umsjón með námskeiðum