Eigna- og viðhaldsstjórnun

Verð fyrir félagsmenn
340.000 kr.
Verð
590.000 kr.
Alþjóðleg vottun í viðhaldsstjórnun – nútíma nálgun með fókus á árangur og rekstraröryggi.

Fyrir hverja:

Námskeiðið er ætlað stjórnendum, verkfræðingum, verkstjórum og sérfræðingum sem bera ábyrgð á viðhaldi, eignastýringu og rekstraröryggi – í fyrirtækjum, opinberum stofnunum og þjónustueiningum. Námskeiðið hentar þeim sem eru að hefja störf á vettvangi eigna- og viðhaldsstjórnunar og eins og ekki síður þeim sem hafa öðlast reynslu á þessum vettvangi og vilja bæta enn við og sækja enn meiri þekkingu á þessu sviði.

Lýsing:

Námskeiðið er haldið í samstarfi við EVS - Eigna- og viðhaldsstjórnunarfélag Íslands og Idhammar. Það veitir djúpa innsýn í viðhaldsstjórnun með áherslu á evrópska staðla (EN 13306 & EN 17007), bilanagreiningu, eignastýringu og stafrænar lausnir. Kennt er á ensku og námskeiðið samanstendur af þremur hlutum - tveimur staðlotum og einni fjarlotu - með blöndu af fyrirlestrum, umræðum og verkefnum. Hluti af námskeiðsgögnum er íslensk þýðing á völdum stöðlum (ISO 55k, EN13306 og EN 17007) sem eru mikilvægir sem slíkir og einnig til að brúa á milli enskunnar og íslenskunnar. Innifalið í námskeiðinu er próf sem tekið er í lok námskeiðsins og veitir evrópskt þekkingarvottorð í viðhaldsstjórnun, EFNMS PASS. Daginn eftir að námskeiðinu lýkur geta þátttakendur, að uppfylltum vissum skilyrðum, einnig tekið próf sem veitir evrópsk færniskírteini í viðhaldsstjórnun, EFNMS CERTIFICATION, það próf er ekki innifalið í verði námskeiðsins.

Markmið:

Að þátttakendur öðlist yfirgripsmikla þekkingu og hagnýt verkfæri í nútíma viðhaldsstjórnun og eignastýringu, og verði færir um að bæta árangur viðhaldsstarfa með stefnumótandi hætti.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Evrópska viðhaldsstaðla (EN 13306 & EN 17007)
  • Bilanagreiningu og áreiðanleika
  • Viðhaldsstefnur og TPM
  • Iðnaður 4.0, kostnaðargreining og upplýsingakerfi
  • Breytingastjórnun, öryggi og stafrænar lausnir

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Skilja lykilatriði viðhaldsstjórnunar og eignastýringar
  • Geta beitt alþjóðlegum stöðlum í daglegu starfi
  • Kunna að nýta stafrænar aðferðir og greiningartól
  • Hafa undirbúið sig fyrir EFNMS vottun

Aðrar upplýsingar:

Námskeiðið er kennt á ensku af sérfræðingum frá Idhammar. Próftaka fyrir EFNMS CERTIFICATE er ekki innifalin í námskeiðsgjaldi og verður auglýst sérstaklega.

Skipulagning námskeiðsins:

  • Hluti 1 (1.-2. september, Vatnagarðar 20, heilir dagar): Grunnstoðir viðhalds, EN staðlar, áreiðanleiki og bilanagreining.
  • Hluti 2 (15.-16. september og 22.-23 september, fjarnám, hálfir dagar): Viðhaldsstefnur, TPM, iðnaður 4.0, kostnaður og upplýsingakerfi.
  • Hluti 3 (5.-6. október, Vatnagarðar, heilir dagar) Stefnumótun, breytingastjórnun, öryggi og stafrænt viðhald.

Hagnýtar upplýsingar:

  • Lengd: 48 klst.
  • Umsjón: EVS, Eigna- og viðhaldsstjórnunarfélag Íslands og Iðan
  • Kennarar frá Idhammar
  • Staðsetning: Iðan fræðslusetur, Vatnagörðum 20 og Zoom (fjarnám)
  • Almennt verð: 590.000. kr
  • Verð fyrir starfsmenn aðildarfyrirtækja EVS: 490.000. kr
  • Verð fyrir félagsaðila Iðunnar: 340.000. kr

Staðsetning
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík

Athugið að suma daga er kennt annarsstaðar, sjá dagsetningar fyrir neðan.

1. september 2026 kl: 09:00 - 17:00
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík
2. september 2026 kl: 09:00 - 17:00
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík
15. september 2026 kl: 08:15 - 12:00
Fjarnám
16. september 2026 kl: 08:15 - 12:00
Fjarnám
22. september 2026 kl: 08:15 - 12:00
Fjarnám
23. september 2026 kl: 08:15 - 12:00
Fjarnám
5. október 2026 kl: 09:00 - 17:00
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík
6. október 2026 kl: 09:00 - 17:00
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Námsmat
Mæting og verkefnavinna
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Ekki er hægt að nota gjafabréf á þessu námskeiði.
Kennari
Kennarar frá Idhammar
Sérfræðingar í eigna- og viðhaldsstjórnun