Vinnustofan er fyrir þau sem eru að gera lífsferilsgreiningar fyrir byggingar og vilja fá aðstoð með verkefnin sín.
Tíminn er hugsaður sem vinnustofa þar sem nemendur vinna í hugbúnaðinum One Click LCA lífsferilsgreiningar fyrir sín verkefni. Ekki er um að ræða fyrirlestrartíma. Leiðbeinendur eru á staðnum til að aðstoða og leiðbeina í verkefnavinnu.
Þátttakendur þurfa að hafa lokið námskeiði um Lífsferilsgreingar bygginga.
Leiðbeinendur útvega ekki nemendum verkefni, heldur þarf hver og einn að koma með sitt eigið verkefni. Þátttakendur þurfa einnig að koma með eigin tölvur.
Helga María er byggingafræðingur með sérhæfingu í lífsferilsgreiningum og umhverfisvænum lausnum innan byggingariðnaðarins.
Hún lauk námi í byggingafræði í Danmörku árið 2019 og hefur einbeitt sér að verkefnum sem snúa að umhverfisvottunum, lífsferilsgreiningum bygginga, aðgengismálum og hringrásarlausnum. Helga María leggur áherslu á heildstæða nálgun sem stuðlar að sjálfbærni og samfélagslegri ábyrgð í hönnun og framkvæmd byggingarverkefna.
Lilja er byggingarverkfræðingur og starfar hjá VSÓ Ráðgjöf á verkefnastjórnunarsviði. Hún sinnir fjölbreyttum verkefnum sem snúa m.a. að sjálfbærni, lífsferilsgreiningum og vottunarkerfum bygginga.