Námskeiðið er ætlað prentsmiðum, grafískum hönnuðum og öllum sem starfa í tengdum greinum innan prentiðnaðar og hönnunar. Einnig hentar það þeim sem vilja bæta við sig þekkingu og færni í hreyfihönnun og markaðsmiðlun á stafrænum vettvangi.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur læri að hanna og framleiða einfaldar hreyfimyndir sem fanga athygli og nýtast í markaðsstarfi fyrirtækja eða fjölmiðlum. Þátttakendur öðlast grunnfærni í notkun Adobe After Effects og fá innsýn í hvernig nýta má önnur forrit, svo sem Figma, við gerð hreyfihönnunar – til dæmis fyrir vefborða og auglýsingar.
Kennari á námskeiðinu er Steinar Júlíusson, reynslumikill og farsæll hreyfihönnuður. Hann hefur starfað fyrir H&M, Acne Stockholm, Unicef á Íslandi, Borgarleikhúsið og Absolut Vodka, auk þess að hafa kennt við Listaháskóla Íslands og hinn virta Berghs School of Communication í Stokkhólmi.Þeir sem taka þátt í fjarnámi þurfa að hafa aðgang að Adobe After Effects á eigin tölvu.