Pappírsvikan: Spjaldanna á milli

Verð fyrir félagsmenn
500 kr.
Verð
2.500 kr.
Á þessum hádegisfyrirlestri verður kynnt verkefnið Spjaldanna á milli sem felur í sér endurnýtingu á bókakápum og varðveislu á þekkingu í bókbandi á Íslandi. Fyrirlesturinn er hluti af röð fyrirlestra í Pappírsvikunni sem haldin er í fyrsta sinn á Íslandi í samvinnu við www.lovepaper.org.

Fyrir hverja:

Fagfólk og áhugasama um endurvinnslu og nýtingu bóka, bókband og hönnun. Og alla þá sem vilja kynna sér skapandi verkefni sem stuðla að sjálfbærni og varðveislu handverkshefða. Boðið verður upp á létt snarl.

Markmið:

Að kynna verkefnið Spjaldanna á milli og varpa ljósi á mikilvægi endurnýtingar bókakápa og varðveislu bókbands á Íslandi, ásamt því að efla vitund um gildi pappírs- og prentiðnaðarins í nútímasamfélagi.

Á fyrirlestrinum verður fjallað um:

  • Verkefnið Spjaldanna á milli unnið í samstarfi Tækniskólans og Iðunnar fræðsluseturs.
  • Endurnýtingu bókakápa og leiðir til að viðhalda og miðla hefðbundnu bókbandi.
  • Menningarlegt og faglegt gildi bókbands á Íslandi
  • Pappírsvikuna, sem haldin er í fyrsta sinn á Íslandi, og alþjóðlegt samstarf við Two Sides og lovepaper.org.

Staðsetning
Tækniskólinn- hús grafískra greina við Vatnsholt, Vatnsholt 39, 105 Reykjavík

3. febrúar 2026 kl: 12:00 - 13:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Námsmat
Fyrirlestur og umræður
Tengiliður
Kristjana Guðbrandsdóttir - [email protected]