Námskeiðið hentar öllum sem hafa áhuga á ostagerð – hvort sem um er að ræða algjöra byrjendur eða þá sem vilja dýpka skilning sinn á mjólkurfræði, gerjun, náttúrulegum gerlum og fjölbreytileika mjólkurafurða. Einnig er námskeiðið tilvalið fyrir áhugafólk um sjálfbærni, staðbundið hráefni og hefðbundið handverk.
Að veita þátttakendum bæði fræðilega og verklega færni til að búa til einfaldar og bragðgóðar mjólkurafurðir heima við aðstæður sem henta íslenskum heimilum. Markmiðið er að þátttakendur skilji ferlana sem móta bragð, áferð og gæði osta og jógúrtar, og tileinki sér nútímalegar áherslur á náttúrulega gerla, minna af viðbótarefnum og notkun á fersku, staðbundnu hráefni.
Allir þátttakendur fá bókina Ostagerð, heimavinnsla mjólkurafurða eftir Þórarinn Egil Sveinsson að gjöf á námskeiðinu.
Mjólkurverkfræðingur