Áhættumat

Í samstarfi við Vinnuverndarnámskeið ehf
Verð fyrir félagsmenn
7.500 kr.
Verð
25.000 kr.
Lærðu hvernig á að framkvæma markvisst og lögbundið áhættumat á vinnustað samkvæmt vinnuverndarlöggjöf.

Fyrir hverja:

Námskeiðið er ætlað atvinnurekendum, stjórnendum, verkstjórum, öryggistrúnaðarmönnum, starfsmönnum mannauðs- og gæðamála sem og öðrum sem koma að skipulagi, framkvæmd eða eftirliti með vinnuvernd á vinnustöðum.

Markmið:

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist skýran skilning á lagalegri skyldu vinnustaða til að framkvæma áhættumat og læri einfalt, hagnýtt verklag við gerð þess.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Hvað vinnuverndarlög og reglugerðir segja um áhættumat á vinnustöðum
  • Hvaða vinnustaðir eru skyldugir til að gera áhættumat og hver ber ábyrgð á framkvæmd þess
  • Uppbyggingu áhættumats og hugmyndafræði þess
  • Aðferðina Sex skref við gerð áhættumats
  • Notkun gátlista og eyðublaða frá Vinnueftirlitinu
  • Greiningu á hættu í vinnuumhverfi með raunhæfum dæmum
  • Verkfæri og eyðublöð sem nýtast við gerð og viðhald áhættumats
  • Möguleika þátttakenda á eftirfylgni og ráðgjöf eftir námskeið

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Þekkja lagaskyldu vinnustaða varðandi áhættumat
  • Geta greint helstu hættur í eigin vinnuumhverfi
  • Beitt aðferðinni sex skref við gerð áhættumats
  • Geta nýtt gátlista og eyðublöð Vinnueftirlitsins við gerð áhættumats
  • Vera í stakk búinn til að framkvæma áhættumat á eigin vinnustað
  • Skilja ábyrgð stjórnenda og starfsmanna í áhættumatsferlinu

Aðrar upplýsingar:

Fjarnámskeið með föstum tímum, kennt í gegnum Google Meet. Kennslan byggir á fyrirlestrum, verkefnum og myndrænum dæmum úr raunverulegu vinnuumhverfi.

27. apríl 2026 kl: 13:00 - 15:00
Fyrirkomulag kennslu
Fjarnám
Námsmat
Mæting og verkefnavinna
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Kennarar frá Vinnuverndar­námskeið ehf
Kennari
Kennarar frá Vinnuverndar­námskeið ehf
Sérfræðingar í öryggis- og vinnuverndarstarfi á vinnustöðum

Iðan er í samstarfi við Vinnuverndarnámskeið ehf. Skólinn var stofnaður í desember 2021 af Eggerti Björgvinssyni, Guðmundi Kjerúlf og Leifi Gústafssyni og býður upp á fjölda vinnuverndar- og vinnuvélanámskeiða. Félagsmenn Iðunnar njóta sérkjara hjá Vinnuverndarnámskeið ehf þegar skráning fer fram hjá Iðunni.