Dan Snow Stoneworks - Masterclass

Í samstarfi við Fornverk í Höfnum
Verð fyrir félagsmenn
19.000 kr.
Verð
75.000 kr.

Fyrir hverja:

Námskeiðið er ætlað öllum þeim er vilja læra hvernig hægt er að skapa listaverk úr grjóti og grjóthleðslum.

Markmið:

Að fræða þátttakendur um aðferðir við sköpun úr grjóti.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Skapandi nálgun, þar sem hefðbundin verkkunnátta er nýtt sem grunnur að sjálfstæðri listsköpun úr náttúrugrjóti.
  • Skilning á steini sem efni, rými og formi
  • Virðingu fyrir náttúrulegu samhengi og samtali við landslagið

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Hafa öðlast skilning á notkun á grjóti í listaverk.
  • Öðlast reynslu af sköpun með náttúrugrjóti.
  • Hafa tileinkað sér aðferðir við grjóthleðslu við sköpun.

Aðrar upplýsingar:

Námskeiðið er haldið af Fornverkum í Höfnum. Öll tæki og tól verða til staðar á svæðinu ásamt kaffaðstöðu. Þátttakendur mæta í vinnufatnaði í samræmi við veður. Boðið verður upp á hressingu yfir alla námskeiðis dagana.

Hafnir eru aldagamalt landnámssvæði sem hefur að geyma margar merkar minjar. Hluti af þessum minjum er gríðarlegt magn af fornum hleðslum og tóftum sem enginn kann deili á í dag.

Með þátttöku kennarans, Dan Snow er tenging Fornverks í Höfnum við alþjóðlegt fagumhverfi styrkt og opnað fyrir nýja sýn á hvernig fornt handverk getur orðið lifandi vettvangur samtímalistar.

Í lok hvers námskeiðs munu þátttakendur fá útskriftarplagg ásamt mynd af hópnum og því listaverki sem tókst að skapa

Staðsetning
Hafnir á Suðurnesjum, Hafnir, 233 Reykjanesbæ

22. maí 2026 kl: 09:00 - 15:00
23. maí 2026 kl: 09:00 - 15:00
24. maí 2026 kl: 09:00 - 15:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Námsmat
Mæting
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Kennari
Dan Snow
listamaður

Dan Snow Stoneworks er alþjóðlega viðurkenndur listamaður og hleðslusérfræðingur sem vinnur á mörkum handverks, listsköpunar og landslags. Verk hans byggja á djúpum skilningi á steini sem efni, rými og formi og einkennast af norrænni næmni, virðingu fyrir náttúrulegu samhengi og samtali við landslagið.