Á námskeiðinu verður fjallað um aðferðir við klippingar sígræns trjágróðurs. Einnig verður fjallað um lífsstarfsemi trjáa og muninn á heilbrigði þeirra í náttúrulegu umhverfi og borgarumhverfi. Hvernig bregst gróður við áreiti svo sem klippingum og hvernig er hægt að lágmarka skaða þegar tré eru snyrt.
Fjallað verður um hvernig meta skal ástand trjágróðurs áður en þau eru klippt svo hægt sé að gera sér grein fyrir því hvaða inngrip hentar hverju þeirra. Hvenær á að klippa og hvenær ekki.
Farið verður yfir sérstöðu sígræns gróðurs auk þess sem skoðað verður lauslega val á verkfærum og viðhald þeirra.
Nemendur taki með sér verkfæri og útifatnað í samræmi við veður í verklega tíma.
Kennari er Ágústa Erlingsdóttir skrúðgarðyrkjumeistari, fv. brautarstjóri skrúðgarðyrkjubrautar hjá Garðyrkjuskólanum - FSu (Fjölbrautaskóla Suðurlands).