Aukið öryggi í bygginga- og mannvirkjagreinum

Í samstarfi við Öryggisskóla iðnaðarins
Verð fyrir félagsmenn
8.000 kr.
Verð
40.000 kr.
Námskeiðið fjallar um hvernig hægt er að efla öryggismenningu í bygginga- og mannvirkjageiranum með nýrri, nútímalegri nálgun sem leggur áherslu á að vinna með aðferðir, aðstæður og vinnuumhverfi. Þátttakendur læra hvernig traust, opnar umræður og markviss lærdómur geta stutt við breytingar á viðhorfum og skapað öruggara og stöðugra vinnuumhverfi.

Fyrir hverja:

Námskeiðið er fyrir alla sem vilja styrkja öryggismenningu, bæta ákvarðanatöku og auka faglegan árangur í bygginga- og mannvirkjageiranum.

  • Stjórnendur, verkstjórar og verkefnastjórar sem vilja leiða breytingar á vinnustað
  • Gæðastjórar og öryggisstjórar sem vilja efla kerfisbundið öryggis- og gæðastarf
  • Fyrirtækjaeigendur og lykilákvarðendur sem vilja fjárfesta í öruggari og skilvirkari starfsemi
  • Verkkaupa í opinberum og einkareknum framkvæmdum sem vilja tryggja gæði og öryggi frá fyrstu ákvörðun
  • Opinbera starfsmenn sem starfa við útboð, útboðsgerð og verkkaupaferli og vilja byggja inn sterkari öryggissjónarmið
  • Alla sem hafa áhrif á öryggi, skipulag eða framkvæmd verkefna

Markmið:

Markmiðið er að byggja ofan á þann öryggisþekkingargrunn sem þátttakendur þegar hafa og bjóða upp á nýja nálgun sem hjálpar til við að endurhugsa hefðbundna sýn og nálgast öryggismál á dýpri og markvissari hátt.

  • Skilja helstu meginreglur nýrrar öryggisnálgunar og hvernig hún breytir hefðbundnum áherslum
  • Læra að greina hættur, veikleika og gildrur í verkferlum og skipulagi
  • Þróa færni í að spyrja opnar, gagnlegar spurningar og byggja upp traust á verkstöðum
  • Fá skýra innsýn í hvernig stjórnendur geta leitt öryggisstarf með áherslu á lærdóm, samvinnu og umbætur

Skipulag:

Námið er staðarnám og kennt frá 09:00 – 12:30. Kennt verður á föstudögum.

Ávinningur:

Námskeiðið veitir þátttakendum skýra og hagnýta innsýn í hvernig hægt er að byggja upp öruggara, skilvirkara og faglegra vinnuumhverfi með nútímalegri nálgun á öryggisstarf. Þú færð meðal annars:

  • Nýja sýn á öryggi – frá einstaklingsáherslu yfir í greiningu á kerfum, aðstæðum og vinnuflæði
  • Betri ákvarðanatöku með dýpri skilningi á því hvað raunverulega skapar áhættu
  • Öflugri samskiptafærni sem stuðlar að trausti, gagnsæi og opnum umræðum
  • Verkfæri til að læra af atvikum og breyta frávikum í umbótatækifæri
  • Sterkari öryggismenningu sem byggir á fagmennsku og stöðugri þróun
  • Hagnýtar, innleiðanlegar aðferðir sem nýtast strax í daglegum aðstæðum
Staðsetning
Stórhöfði 27, Stórhöfði 27, 110 Reykjavík

20. febrúar 2026 kl: 09:00 - 12:30
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Námsmat
Mæting og verkefnavinna
Eyjólfur Bjarnason
Kennari
Eyjólfur Bjarnason
Byggingatæknifræðingur

Eyjólfur er byggingatæknifræðingur frá Noregi. Hann hefur starfað sem öryggis- og gæðastjóri, ráðgjafi, bæjartæknifræðingur og leiðbeinandi á námskeiðum hjá Iðunni.