Grunnnámskeið í CABAS

Í samstarfi við CAB Group
Verð fyrir félagsmenn
18.000 kr.
Verð
90.000 kr.
CABAS grunnnámskeiðið er þjálfun fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í CABAS / CABAS Light við CABAS skýrslugerð, hvort sem það er á málmi, lakki eða plasti. Þjálfunin er einnig hentug fyrir þá sem hafa notað CABAS áður en vilja skepra á sinni þekkingu.

Fyrir hverja:

Starfsmenn bílaverkstæða, tryggingafélaga og allir þeir sem hafa áhuga á að læra á CABAS.

Markmið:

Þeir sem sækja námskeiðið öðlast lágmarks grundvallar þekkingu á því hvernig skal framkvæma tjónamat í CABAS að loknu grunnnámi. Þáttakendur geti gert útreikninga og hafi skilning á CABAS tjónamatskerfinu.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Útskýringu á MYSBY kerfinu og aðferðafræði.
     Við kynnum hvernig Cabgroup AB býr til viðgerðartíma í CABAS. Tímarnir eru búnnir til með MYSBY, sem er kerfi til að reikna út viðgerðartíma fyrir tjónaviðgerðir á ökutækjum.
  • Yfirlit námskeiðs í CABAS.
    Við förum í gegnum kynningu okkar / notendaleiðbeiningar, sem lýsa bakgrunn og aðferðafræði.Það eru aðferðir fyrir yfirborðs-réttingu, mæliréttingu, málningar og plast útreikninga einnig gler.
  • Kynningu grunnþátta.
    Við förum yfir grunnþætti kerfisins, þ.e. tryggingafélög, notendur og cab appið.
  • Aðferðafræði CABAS.
    Við förum í gegnum aðgerðir og aðferðir til að takast á við möguleikana í kerfinu og því að geta reiknað rétt. 
  • Aðrar áherslur.
     Uppsetning, ljósmyndastjórnun, samskipti milli aðila. 
  • Verkefni.
     Þáttakendur fá verkefni og aðgang að kennslureikning til útreikninga.

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Þekkja MYSBY kerfið og hvernig viðgerðartími er reiknaður út
  • hafa öðlast grunnleikni í notkun á CABAS í tjónaskoðun
  • Skylja aðferðafræði CABAS og vistun gagna

Aðrar upplýsingar:

Grunnþekking á tölvu / Windows staðall. Engin reynsla nauðsynleg af notkun CABAS.

24. febrúar 2026 kl: 09:00 - 16:00
25. febrúar 2026 kl: 09:00 - 16:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Námsmat
100% mæting og þátttaka í verkefnavinnu
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Sveinn Jónsson
Kennari
Sveinn Jónsson
Sérfræðingur í CABAS