Námskeiðið er fyrir kælimenn og aðra sem vinna við eða hyggjast hefja störf við ammóníak-kælikerfi, án þess að hafa áður unnið við slík kerfi. Námskeiðið hentar einnig þeim sem vilja styrkja þekkingu sína á viðhaldi og öryggisþáttum tengdum ammóníakkerfum.
Að þátttakendur öðlist þá þekkingu og færni sem þarf til að vinna örugglega og faglega með ammóníakkælikerfi, með áherslu á virkni, viðhald og áhættumat.
Þátttakendur fá ítarleg námsgögn. Engar sérstakar forkröfur, en almenn reynsla úr kælitækni er kostur.
Kristján Kristjánsson, starfaði um árabil sem sviðsstjóri málm- og véltæknigreina hjá Iðunni en áður hafði hann unnið sem vélstjóri á sjó og komið að kennslu og þróunarvinnu í Namibíu.