Að fanga augnablikið – Myndefni fyrir samfélagsmiðla í veitingageiranum

Verð fyrir félagsmenn
12.000 kr.
Verð
55.000 kr.
Þetta námskeið er ætlað fagfólki í matvæla- og veitingageiranum sem vill efla hæfni sína í myndagerð fyrir samfélagsmiðla og eigin nota. Unnið er með hagnýta nálgun þar sem þátttakendur læra að nýta aðstæður, ljós og umhverfi til að fanga augnablik og stemningu í starfi sínu með iPhone snjallsíma eða einfaldri myndavél. Námskeiðið felur í sér að læra að búa til einfalt en vandað myndefni, og miðla því á réttan hátt í leik og starfi. Námskeiðið er kennt einu sinni í viku í 3 vikur, 4 klst. í senn. ATH – Námskeið þetta er ætlað þeim sem eiga Iphone síma og einfaldar myndavélar

Fyrir hverja:

Fagfólk í matvæla- og veitingagreinum sem vilja bæta myndatökufærni sína og fanga augnablikið þegar það gefst.

Markmið:

Að þátttakendur öðlist traustan grunn og hagnýt verkfæri til að búa til betra myndefni, nýta ljós og umgjörð rétt, og vinna myndir á einfaldan hátt.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Myndefni og árangursríka notkun þess fyrir samfélagsmiðla
  • Möguleika og takmarkanir iPhone snjallsíma og einfaldari myndavéla
  • Gervilýsing innandyra og í lítilli birtu
  • Leikmuni, bakgrunn og uppsetningu (styling)
  • Kynningu á myndvinnsluforritum
  • Verklegar æfingar, einstaklings- og hópaverkefni og heimaverkefni

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Geta tekið flottar myndir með iPhone snjallsíma eða einfaldri myndavél
  • Búið til aðlaðandi myndefni fyrir samfélagsmiðla
  • Geta nýtt lýsingu og umhverfið til að fanga stemninguna
  • Unnið myndefni í iPhone snjallsíma

Staðsetning
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík

11. mars 2026 kl: 14:00 - 18:00
18. mars 2026 kl: 14:00 - 18:00
25. mars 2026 kl: 14:00 - 18:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Námsmat
Mæting og verkefnavinna
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Karl Petersson
Kennari
Karl Petersson
Ljósmyndari

Karl Petersson er einn allra færasti matarljósmyndari hér á landi og hefur myndað fyrir fjölmargar matreiðslubækur sem komið hafa út undanfarin ár.