Þjónustunámskeið - Framhaldsnámskeið

Verð fyrir félagsmenn
5.000 kr.
Verð
15.000 kr.
Námskeiðinu er ætlað að skerpa söluvitund og skipulagshæfileika þjóna. Á námskeiðinu er farið yfir hversvegna við seljum eitthvað en ekki bara eitthvað ásamt því að skerpa á vitund þjóna um hversu miklu máli undirbúningur skiptir. Farið er yfir skipulag er varðar hópa og hvernig best er að bera sig að varðandi nálgun og þjónustu við hina mismunandi hópa á veitingahúsum.

Fyrir hverja:

Þjóna og þjónustufólk með reynslu sem vill skerpa á söluvitund og skipulagshæfileikum.

Markmið:

Að styrkja hæfni í sölu, undirbúningi og skipulagi þjónustu við mismunandi hópa.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Söluvitund og markmið með sölu
  • Mikilvægi undirbúnings
  • Skipulag og nálgun þjónustu við hópa

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Skilja tilgang og gildi virkrar sölu
  • Undirbúa sig faglega fyrir þjónustu
  • Bjóða upp á skipulagða og markvissa þjónustu við hópa

Staðsetning
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík

17. mars 2026 kl: 18:00 - 21:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Námsmat
Mæting og verkefnavinna
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Stefán Ingi Guðmundsson
Kennari
Stefán Ingi Guðmundsson

Stefán Ingi hefur starfað sem þjónn síðan 1986 þegar hann hóf störf sem barþjónn á Hótel Borg. 1991 útskrifaðist Stefán sem framreiðslusveinn frá Hótel Óðinsvéum og tók svo nokkrum árum seinna við sem veitingastjóri yfir bæði Óðinsvéum og Viðeyjarstofu. 2012 var meistaranámi lokið við MK og útskrifaðist Stefán með ágætiseinkunn þaðan. 2020 var förinni síðan heitið í Háskóla Íslands þaðan sem Stefán útskrifaðist með kennsluréttindi Iðnmeistara árið 2021. Á sínum langa ferli sem framreiðslumaður hefur Stefán komið víða við og kynnst mörgum framúrskarandi fagmönnum jafnt matreiðslumönnum sem og framreiðslumönnum. Á seinni árum hefur Stefán æ meira reynt að tvinna saman þjónustu og jákvæða sölumennsku ásamt því að leiðbeina þjónum framtíðarinnar um þá jákvæðu upplifun sem góð þjónusta getur skilið eftir sig í minningu veitingahúsagesta.