Blágrænar ofanvatnslausnir

Verð fyrir félagsmenn
7.000 kr.
Verð
35.000 kr.
Námskeið um hönnun, mótun og framkvæmd blágrænna ofanvatnslausna og hvernig þær draga úr álagi á fráveitukerfi. Lögð er áhersla á lausnir sem leiða yfirborðsvatn aftur niður í grunnvatnið í stað þess að leiða það beint til sjávar.

Fyrir hverja:

Námskeiðið er ætlað verktökum, verkstjórum og öðrum sem koma að uppbyggingu og framkvæmd mannvirkja og útisvæða þar sem gera þarf ráð fyrir meðferð ofanvatns á öruggan og sjálfbæran hátt.

Markmið:

Markmið námskeiðsins er að fræða þátttakendur um blágrænar ofanvatnslausnir og hlutverk þeirra á byggðum svæðum.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Hönnun blágrænna ofanvatnslausna og hvernig þær virka í raun.
  • Mótun lands og yfirborðs til að stýra rennsli og draga úr álagi á fráveitukerfi.
  • Helstu útfærslur, efnisval og framkvæmdaratriði sem skipta máli fyrir endingargóða lausn.
  • Algeng mistök og hvað þarf að hafa í huga til að lausnir haldi virkni og útliti til lengri tíma.

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Kunna að lesa og skilja helstu forsendur í hönnunargögnum og teikningum tengdum ofanvatnslausnum.
  • Geta framkvæmt blágrænar ofanvatnslausnir samkvæmt hönnunargögnum og tryggt réttan frágang á verkstað.
  • Þekkja lykilatriði í mótun, frágangi og viðhaldi sem tryggja að lausnir virki til lengri tíma.

Aðrar upplýsingar:

Námskeiðið er bóklegt og byggir á dæmum og útfærslum sem tengjast íslenskum aðstæðum og framkvæmdum.

Staðsetning
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík

12. mars 2026 kl: 09:00 - 12:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Námsmat
Mæting
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Björn Jóhannsson
Kennari
Björn Jóhannsson
Björn Jóhansson, BA Hons, Dipl LA, MSc

Landslagsarkitekt hjá Urban Beat Design