Blómaskreytingar með páskalegu ívafi

Í samstarfi við Garðyrkjuskólann
Verð fyrir félagsmenn
9.000 kr.
Verð
45.000 kr.
Námskeið fyrir þau sem vilja fegra sitt nærumhverfi og útbúa einfalda blómvendi og borðskreytingar með páskalegu ívafi.

Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem vilja fegra sitt nærumhverfi.

Fjallað verður helstu tegundir afskorinna blóma og greina sem tengjast páskum. Nemendur fá verklega kennslu við skáskurð, hreinsun stilka og viðeigandi meðhöndlun afskorinna blóma eftir tegundum. Nemendur læra að útbúa einfalda blómvendi, hvernig á að ganga frá þeim og meðhöndlun heima við. Útbúnar verða einfaldar borðskreytingar með páskalegu ívafi.

Rík áhersla er lögð á góða nýtingu á efni sem og nýtingu efnis úr nærumhverfinu. Í lok námskeiðs fara þátttakendur heim með afrakstur dagsins.

Kennari er Bryndís Eir Þorsteinsdóttir, blómahönnuður.

Námskeiðið er haldið af Garðyrkjuskólanum. Allt efni, námsgögn, kaffi og hádegismatur er innifalið í verði.

Staðsetning
Garðyrkjuskólinn, Reykjum, 816 Ölfusi

21. mars 2026 kl: 09:00 - 16:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Námsmat
100% mæting
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Kennari
Kennarar Garðyrkjuskólans