Námskeiðið er ætlað öllum sem koma að meðhöndlun, framleiðslu, geymslu eða framreiðslu matvæla. Það hentar starfsfólki í eldhúsum, veitingarekstri, mötuneytum, bakaríum, matvælaframleiðslu og verslun, sem og stjórnendum og ábyrgðaraðilum á sviði matvælaöryggis.
Að auka þekkingu og skilning þátttakenda á helstu hættum í matvælaframleiðslu og kenna hvernig tryggja má matvælaöryggi með góðum starfsháttum og innra eftirliti samkvæmt HACCP-kerfinu.
Elísabet Katrín er með:B.A.-gráðu í NútímafræðiM.A.-gráðu í Hagnýtri siðfræði með áherslu á náttúru- og umhverfissiðfræðiDiplómu í Verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun (VOGL) – Leiðtogafærni, samskiptafærni, stefnumótunarfærni og skipulagsfærniDiplómu í Samningatækni og afburðarstjórnun (SOGA) – Gæðastjórnun, markþjálfun, afburðastjórnun og samningatækni
Hún hefur áralanga reynslu í gæðamálum, kennslu og HACCP-innleiðingu og hefur starfað sem gæðavörður, setið í HACCP-hópum og kennt fjölda námskeiða á þessu sviði.