Chris Lund kennir á Photoshop og Lightroom

Verð fyrir félagsmenn
10.400 kr.
Verð
62.000 kr.
Kostir Lightroom og samspil við Photoshop

Fyrir hverja:

Námskeiðið er ætlað fagfólki sem notar Photoshop reglulega og vill styrkja faglegan grunn sinn, kynnast nýjungum og bæta vinnuferla sína.
Einnig hentar það þeim sem nota Photoshop en hafa litla eða enga reynslu af Lightroom og vilja skilja kosti þess og samspil forritanna í faglegri framleiðslu.

Markmið námskeiðsins:

Markmið námskeiðsins er að dýpka og efla færni þátttakenda í myndvinnslu með því að sameina styrkleika Photoshop og Lightroom. Áhersla er lögð á skilvirkt vinnuflæði, nákvæma myndvinnslu og faglega notkun í raunverkefnum, þannig að þekkingin nýtist beint í daglegum störfum, bæti gæði verkefna og flýti fyrir vinnuferlum.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

Photoshop – fagleg vinnsla
Yfirlit yfir nýjungar og uppfærslur í Adobe Photoshop.
Skipulag, vinnuferlar og skilvirk vinnubrögð.
Nákvæma myndvinnslu og faglega lagfæringu.
Litastjórnun, leiðréttingar og stillingar (adjustments).
Ábendingar og ráð byggð á raunverulegum verkefnum.

Lightroom – skipulag og grunnvinnsla
Kynningu á Lightroom: möguleikar, kostir og takmarkanir
Innflutning mynda og skipulag í bókasafni.
Grunnvinnslu: exposure, white balance, kúrfur, skerpa og samræming lita.
Aðlaganir: maskar, gradients og radial tools.

Samspil Lightroom og Photoshop
Hvernig forritin vinna saman í faglegu vinnuflæði.
Hvenær er best að vinna í Lightroom og hvenær í Photoshop.
Flutningur mynda á milli forrita og skilvirk nýting beggja.

Að loknu námskeiði ættu þátttakendur að:

Hafa betri yfirsýn yfir möguleika Photoshop og Lightroom og nýta forritin markvissar.
Geta unnið hraðar og skipulagðar með faglegum vinnuaðferðum.
Beita nákvæmari val- og lagfæringartækni.
Skilja hvernig samspil Lightroom og Photoshop bætir gæði og flæði í faglegri myndvinnslu.

Staðsetning
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík

24. mars 2026 kl: 09:30 - 13:30
26. mars 2026 kl: 15:58 - 13:30
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Námsmat
Mæting
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Kennari
Christopher Lund
Ljósmyndari

Christopher Lund er reynslumikill ljósmyndari og hefur starfað yfir 20 ár á Íslandi, í Noregi og Danmörku. Hann er sérfræðingur í notkun Lightroom og Photoshop.